Rannsóknarráðstefna Vegagerðarinnar 2006
Þróunarsvið Vegagerðarinnar stóð fyrir árlegri rannsóknaráðstefnu sinni föstudaginn 3. nóvember 2006, á Hótel Nordica.
Þetta er í fimmta sinn sem rannsóknaráðstefnan er haldin og hefur í hvert sinn dregið til sín vel yfir hundrað þátttakendur. Árið 2005 voru reyndar slegin öll met, þegar þátttakendur voru um 170 en þátttakendur í þetta sinn voru um 130.
Það er óhætt að fullyrða að ráðstefnan sé búin að festa sig í sessi sem árlegur viðburður. Gera má ráð fyrir að starfsmenn verktaka, verkfræðistofa og aðrir í vegageFrðargeiranum og verklegum framkvæmdum fara að reikna með þessu sem föstum lið í byrjun nóvember hvers árs.
Ráðstefna sem þessi er ein af þeim leiðum sem hægt er að fara til að kynna niðurstöður rannsóknaverkefna, sem styrkt eru úr rannsóknasjóði Vegagerðarinnar, en styrkir nema nú yfir 100 milljónum á ári.
Undanfarin ár hefur verið veittur styrkur til u.þ.b. 100 verkefna á ári, en á svona ráðstefnu er aðeins hægt að koma fyrir um 20 erindum og því augljóst að ekki er hægt að koma öllu að.
Skýrslur og niðurstöður rannsókna eru birtar á vefnum jafnóðum og þær liggja fyrir hér:
Upplýsingar og útgáfa => Rannsóknarskýrslur.
Dagskrá ráðstefnunnar með erindum og ágripum:
Dagskrá |
|
---|---|
08:00-9:00 | Skráning |
09:00-9:15 | Setning (Þórir Ingason, Vegagerðin) |
Mannvirki |
|
09:15-9:30 | Þreytuáraun á stálbrýr á Íslandi (Jóhannes Loftsson, VST) - ágrip |
09:30-9:45 | Göngubrýr yfir Hringbraut - sveiflumælingar (Guðmundur Valur Guðmundsson, Einar Þór Ingólfsson og Baldvin Einarsson Línuhönnun, Bjarni Bessason, HÍ) - ágrip |
09:45-10:00 | Virkni XYPEX í Íslenskri steinsteypu (Gísli Guðmundsson, Hönnun) - ágrip |
10:00-10:15 | Umhverfisvæn steinsteypa (Björn Hjartarson, Rannsóknastofnun byggingariðnarðarins) - ágrip |
10:15-10:45 | Kaffi |
10:45-11:00 | Burður vega og þungatakmarkanir (Sigurður Erlingsson og Guðjón Örn Björnsson HÍ) - ágrip |
11:00-11:15 | Könnun á tækjum og aðferðum til viðgerða á bundnu slitlagi (Daníel Árnason, Vegagerðin) - ágrip |
11:15-11:30 | Hrýfimælingar vega með leysitæki (Valgeir Steinn Kárason, Vegagerðin) - ágrip |
11:30-11:45 | Hljóðvarnir við vegi (Ólafur Hjálmarsson, Trivium ráðgjöf; Ólafur Daníelsson, Línuhönnun) - ágrip |
11:45-12:00 | Umræður og fyrirspurnir |
12:00-13:00 | Matur |
Umferð |
|
13:00-13:15 | Óhappa og slysatíðni eftir gerð vegar (Haraldur Sigþórsson og Þórólfur Nielsen, Línuhönnun) - ágrip |
13:15-13:30 | Áhrif vetrarþjónustu á umferðaröryggi (Skúli Þórðarson, Orion ráðgjöf) - ágrip |
13:30-13:45 | Nýtt umferðarlíkan höfuðborgarsvæðisins (Smári Ólafsson, VSÓ) - ágrip |
13:45-14:00 | Leiðbeiningar um hönnun 2+1 vega (Bryndís Friðriksdóttir og Haraldur Sigþórsson, Línuhönnun, í samstarfi við verkfræðistofuna Fjölhönnun og Vegagerðina) - ágrip |
Umhverfi |
|
14:00-14:15 | Hlaupfarvegur undir jökli við Kötlugos (Helgi Björnsson og Finnur Pálsson HÍ) - ágrip |
14:15-14:30 | Aðferðir við mat á áhrifum framkvæmda á landslag (Ólafur Árnason, Línuhönnun) - ágrip |
14:30-14:45 | Mat á umhverfisáhrifum framkvæmda - Innleiðing matsáætlana - Gæði og árangur (Hólmfríður Sigurðardóttir, Skipulagsstofunun og Óli Halldórsson, Þekkingarsetri Þingeyinga) - ágrip |
14:45-15:15 | Kaffi |
15:15-15:30 | Vistferilsgreining fyrir veg með bundnu slitlagi (Harpa Birgisdóttir, Línuhönnun) - ágrip |
15:30-15:45 | Námufrágangur (Hersir Gíslason, Vegagerðin) - ágrip |
15:45-16:00 | Uppgræðsla vegfláa með innlendum úthagategundum (Jón Guðmundsson, LBHÍ) - ágrip |
16:00-16:15 |
Notkun á tilfallandi lífrænum úrgangsefnum til uppgræðslu (78 glærur ath! 42,8 MB) |
16:15-16:30 | Hnattrænar loftslagsbreytingar og vegarekstur (Skúli Þórðarson, Orion ráðgjöf) - ágrip |
Annað |
|
16:30-16:45 | Rannsóknastefna Vegagerðarinnar (Hreinn Haraldsson, Vegagerðin) - ágrip |
16:45-17:00 | Umræður og fyrirspurnir |
17:00- | Ráðstefnuslit, léttar veitinga í boði Vegagerðarinnar |
Veggspjald 1: Ten years of thermal evolution of the Gjálp edifice
Veggspjald 2: Meltwater dynamics beneath Skeiðarárjökull from continous GPS measurements