Gagnaveita Vegagerðarinnar

Leyfi, samkvæmt 31. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012

og lögum um landmælingar og grunnkortagerð nr. 103/2006,

fyrir gjaldfrjáls gögn frá Vegagerðinni

 

Höfð var hliðsjón af breska leyfinu „Open government licence“

http://www.nationalarchives.gov.uk/doc/open-government-licence/

Þú ert hvattur til að nota og endurnýta þær upplýsingar sem eru gerðar aðgengilegar samkvæmt þessu leyfi, að uppfylltum eftirfarandi skilmálum og viðauka 1.

Notkun upplýsinga með þessu leyfi.

Með notkun efnis sem hefur verið gert aðgengilegt samkvæmt þessu leyfi (hér eftir kallað „upplýsingarnar“) telst þú hafa samþykkt eftirfarandi skilmála og skilyrði.

Vegagerðin gefur þér ótímabundið leyfi til varanlegrar notkunar upplýsinganna hvar sem er, án gjaldtöku og gefur eftir einkarétt sinn, sé honum til að dreifa, að uppfylltum skilyrðunum hér fyrir neðan.

Þetta leyfi skerðir ekki réttindi notenda skv. 2. kafla höfundalaga nr. 73/1972 um takmarkanir á höfundarétti.

 Þú færð leyfi til að:

  • afrita, birta, dreifa og senda upplýsingarnar,
  • aðlaga upplýsingarnar og
  • endurnýta upplýsingarnar í hagnaðarskyni til dæmis með því að setja þær saman við aðrar upplýsingar eða með því að hafa upplýsingarnar sem hluta af þinni vöru eða hugbúnaði.

 

Þú verður, þegar þú gerir eitthvað af ofantöldu, að:

  • láta koma fram að þær upplýsingar sem byggt er á, stafi frá Vegagerðinni með eftirfarandi texta: Byggt á gögnum frá Vegagerðinni. Einnig skal vísa í þetta leyfi þar sem því verður við komið.

 

Gættu að því að:

  • þú notir ekki upplýsingarnar með þeim hætti að þú gefir til kynna að þú sért í opinberri stöðu eða að upplýsingaveitandinn samþykki þig sérstaklega sem notanda eða notkun þína á upplýsingunum;
  • þú villir ekki um fyrir öðrum eða birtir upplýsingarnar eða getir um uppruna þeirra með villandi eða röngum hætti;
  • notkun þín á upplýsingunum stangist ekki á við lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga nr. 77/2000 eða 6. gr. upplýsingalaga um gögn sem eru undanþegin upplýsingarétti almennings.

 Ef þú fylgir ekki þessum skilyrðum eru réttindi þín samkvæmt þessu leyfi sjálfkrafa afturkölluð.

 

Undantekningar.

Þetta leyfir nær ekki til notkunar á:

  • persónuupplýsingum;
  • einkennismerki opinberra aðila eða skjaldarmerki nema þar sem þau geta talist mikilvægur hluti af skjalinu eða gagnasafninu;
  • réttindum þriðja aðila sem Vegagerðin hefur ekki heimild til að gefa út undir þessu leyfi.

 

Engin ábyrgð.

Vegagerðin er undanskilin fyrirsvari, ábyrgð, skyldum og skaðabótum í tengslum við upplýsingarnar að því marki sem lög leyfa.

Vegagerðin ber ekki ábyrgð á neinum villum eða vanskráningu í upplýsingunum og skal ekki vera ábyrg fyrir neinu tapi, meiðslum eða skaða sem hlýst af notkun þeirra. Vegagerðin  ábyrgist ekki áframhaldandi aðgengi að upplýsingunum.

 

Gildandi lög.

Þetta leyfi er háð lögum í því lagaumhverfi þar sem upplýsingaveitandinn hefur aðsetur nema annað sé tekið fram af upplýsingaveitandanum.

 

Skilgreiningar.

Í þessu leyfi hafa orðin hér fyrir neðan eftirfarandi merkingu:

 „upplýsingar“

stendur fyrir þær upplýsingar sem falla undir höfundarétt eða vernd gagnagrunna (til dæmis bókmennta- eða listaverk, efnisinnihald, gögn eða frumkóta hugbúnaðar) sem eru gefin út samkvæmt skilmálum þessa leyfis.

 „nota“

sem sagnorð, stendur fyrir framkvæmd þeirra aðgerða sem eru varðar með höfundarétti eða vernd gagnagrunna, hvort sem er með upprunalegum miðli eða öðrum miðli og felur í sér takmörkun á dreifingu, fjölfjöldun, aðlögun og breytingum sem eru tæknilega nauðsynlegar til notkunar með öðrum hætti eða á öðru sniði.

 „þú“

stendur fyrir einstakling eða lögaðila eða hóp slíkra aðila sem fær þau réttindi sem leyfið veitir.

 

Vegagerðin 1. september 2014.

 

Viðauki 1.

Vegna aðgerða íslenskra stjórnvalda til að koma í veg fyrir akstur utan vega og við að takmarka eða koma í veg fyrir umferð á ákveðnum svæðum landsins þá tekur Vegagerðin það fram að notendur afhentra gagna bera sjálfir ábyrgð á að fylgjast með því ef og þegar vegum og slóðum er lokað tímabundið eða að fullu fyrir almennri umferð. Slíkar aðgerðir stjórnvalda ganga alltaf lengra en upplýsingar um vegi og slóða í gagnagrunnum Vegagerðarinnar á hverjum tíma.

 

Vefþjónustur og lýsing á þeim:

Almennt um gjaldfrjáls gögn
Vegagerðin framleiðir og varðveitir margvísleg gögn tengd vegum, færð, umhverfi og ástandi vega  Íslenska ríkið er eigandi að öllum réttindum sem Vegagerðin hafur öðlast og gætir stofnunin hagsmuna ríkisins á sviði höfunda- og afnotaréttar á öllu því efni sem hún hefur eignast, unnið eða gefið út í sambandi við mælingar, kort eða myndir af Íslandi. Frá og með 23. janúar 2013 eru öll þessi gögn án endurgjalds en vegna höfundaréttar gilda um þau höfundalög nr. 73/1972 með síðari breytingum.

 

Vefmyndavélar
Lýsing á upplýsingum um vefmyndavélar (PDF skjal).

Færð
Snjómokstursleiðir eru fyrirfram skilgreindar leiðir á milli ákveðinna staða. Vegagerðin gefur út upplýsingar um færð á þessum leiðum. Hver leið hefur ákveðið þjónustustig og snjómokstursreglu. Á heimasíðu Vegagerðarinnar má finna nánari upplýsingar um vetrarþjónustu. http://www.vegagerdin.is/upplysingar-og-utgafa/leidbeiningar-og-stadlar/vetrarthjonusta/

Lýsing á upplýsingum um færð (PDF skjal).
Lýsing á upplýsingum um um snjómokstursleiðir, hnit, þjónustustig o.fl. fyrir þá vegi þar sem til eru upplýsingar um færð (PDF skjal).

Veður
Lýsing á upplýsingum um veður (PDF skjal).