Ástand í jarðgöngum

Í jarðgöngum landsins er margskonar mælibúnaður sem Vegagerðin vaktar allan sólarhringinn.  Upplýsingar frá nýjustu jarðgöngunum, þ.e.a.s. Bolungarvíkurgöngum og Héðinsfjarðargöngum, eru hér gerðar aðgengilegar almenningi.

Á vefsíðum beggja þessara ganga eru upplýsingar um umferð og meðalhraða í báðar akstursstefnur, upplýsingar um hita og raka, CO og NO2 mengun auk upplýsinga um veður við göngin og hita trekk  og trekkstefnu í  göngunum. Staða á lokunarslám við gangamunna sést einnig á vefsíðunum.

Smellið á rauðan punkt á kortinu eða á nafn jarðganga í töflunni hér að neðan til að sjá upplýsingarnar.

Bolungarvíkurgöng Héðinsfjarðargöng

  Lengd
Hvalfjarðargöng - undir Hvalfjörð á Hringveginum 5.770 m
Dýrafjarðargöng - milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar  5.600 m
Göng undir Breiðadals- og Botnsheiði - milli Skutulsfjarðar, Önundarfjarðar og Súgandafjarðar   9.120 m
Bolungarvíkurgöng milli Hnífsdals og Bolungarvíkur 5.400 m
Arnardalshamar - milli Ísafjarðar og Súðavíkur 30 m
Strákagöng - milli Fljóta og  Siglufjarðar 800 m
Héðinsfjarðargöng - milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar 11.000 m
Múlagöng - í Ólafsfjarðarmúla milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar 3.400 m
Vaðlaheiðargöng - undir Vaðlaheiði á Hringveginum austan Akureyrar 7.500 m
Norðfjarðargöng - milli Eskifjarðar og Norðfjarðar 7.900 m
Fáskrúðsfjarðargöng - milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar 5.900 m
Almannaskarðsgöng - milli Lóns og Hornafjarðar 1.300 m