• Herjólfur á siglingu

Ferjur

1. Vestmannaeyjar - Landeyjahöfn
Milli lands og Vestmannaeyja eru fluttir farþegar og bílar í reglulegum áætlunarferðum.

2. Stykkishólmur - Flatey - Brjánslækur
Á milli Stykkishólms og Brjánslækjar eru fluttir farþegar og bílar í reglulegum áætlunarferðum með viðkomu í Flatey fyrir farþega og frakt.

3. Árskógsströnd - Hrísey
Á milli Árskógsstrandar og Hríseyjar eru fluttir farþegar og frakt í reglubundnum áætlunarferðum.

4. Hrísey - Dalvík - Grímsey
Á milli Hríseyjar, Dalvíkur og Grímseyjar eru fluttir farþegar og frakt í reglubundnum áætlunarferðum.

5. Mjóifjörður - Neskaupstaður
Á milli Mjóafjarðar og Neskaupstaðar eru fluttir farþegar og frakt í reglubundnum áætlunarferðum yfir vetrartímann.

Vegagerðin styrkir rekstur framangreindra ferjuleiða að undangengnu útboði. Vegagerðin (ríkið) á fjórar ferjur, Vestmannaeyjaferjuna Herjólf, Breiðafjarðarferjan Baldur, Hríseyjarferjuna Sævar og Grímseyjarferjuna Sæfara. Vegagerðin býður fram framangreindar ferjur til leigu í útboðum á rekstri ferjuleiðanna 1., 2., 3., og 4.  Á öðrum leiðum leggja bjóðendur fram skip í tilboðum sínum.

Hér er listi yfir þær ferjur sem eru í förum í dag:

Vestmannaeyjar - Landeyjahöfn

Herjólfur
Stykkishólmur - Flatey - Brjánslækur

Baldur
Árskógsströnd - Hrísey

Sævar
Hrísey - Dalvík - Grímsey
Dalvík - Hrísey
Dalvík - Grímsey
Vegagerðin
Mjóifjörður - Neskaupstaður
1. október - 31. maí

Frá: Mjóafirði  Neskaupstað
Mánudagar:  kl. 10:00 kl. 12:30
Fimmtudagar: kl. 10:00 kl. 12:30
                Ef farþegar óska mun verða stoppað                                             lengur, t.d. til kl. 14:00.
Flóabáturinn
Björgvin 

Sími: 8494797/
8494790