Innkaupastefna Vegagerðarinnar
Stefnan byggir á hlutverki, gildum og meginmarkmiðum Vegagerðarinnar.
Gildi Vegagerðarinnar eru: Fagmennska – Öryggi – Framsýni - Þjónusta
Markmið innkaupastjórnunar er að útvega þá vöru, þjónustu og verk sem Vegagerðin þarfnast, á réttum tíma, á hagkvæmasta verði og sem stenst settar kröfur.
- Rekstrardeild skal hafa umsjón með vöruinnkaupum. Við verkútboð skal samráð haft við rekstrardeild um efnisútvegun.
- Innkaup skulu fara fram af fagmennsku, þekkingu og í samræmi við verklags- og siðareglur.
- Jafnræðis skal gætt milli þeirra sem eiga viðskipti við Vegagerðina.
- Stuðla skal að virkri samkeppni um kaup á þjónustu og vörum til Vegagerðarinnar með því að leita verðtilboða frá fleiri en einum aðila eða að innkaup fari fram með útboði.
- Skipulögðum innkaupaaðferðum verði beitt með samræmdum vinnubrögðum og þannig stuðlað að bestu kaupum.
- Innkaup innan Vegagerðarinnar skulu samræmd þannig að efnisval og þarfir séu áþekkar og stuðli þannig að samnýtingu og hagkvæmni.
- Taka skal tillit til öryggis- og umhverfissjónarmiða.
Útgáfudagur á vef 11.09.2019