Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 4.6.2018

4.6.2018 14:52

Framkvæmdir

Mánudaginn 4. júní verður 120 m. langur kafli malbikaður á Miklubraut, þetta er ysta akrein áður en komið er að gatnamótum við Kringlumýrarbraut. Þrengt verður í eina akrein á meðan og áætlað er að framkvæmdir standi yfir milli kl. 16:00 og 22:00.


Einnig er stefnt að því að fræsa og malbika beygjuakrein frá Miklubraut yfir á Kringlumýrarbraut.
Búast má við lítilsháttar umferðartöfum.
Áætlað er að malbikunin frá kl. 15:00 til kl. 19:00.

Malbiksviðgerðir verða einnig í dag hjá Ánanaustum seinni part dags

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Akstursbann á hálendisvegum

Akstursbann er nú á fjölmörgum hálendisvegum og -slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Því miður ber talsvert á því að ökumenn virði ekki merkingar um þessar lokanir sem settar eru á til að hlífa bæði vegunum sjálfum og náttúrunni í kringum þá fyrir átroðningi og skemmdum sem auðveldlega verða á þessum árstíma. Því er rétt að árétta að það er lögbrot að fara inn á veg framhjá merkinu allur akstur bannaður. Sjá nánar hér


Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.