Tilkynning um færð og ástand
Umferðarþjónusta - Tilkynning - 4.12.2017
Færð og aðstæður
Á Suðurlandi er hálka á Mosfellsheiði og hálkublettir á Hellisheiði, Þrengslum og víða í uppsveitum.Það hefur myndast töluverð hálka eða hálkublettir á vegum á Vesturlandi með kvöldinu.
Á Vestfjörðum og Norðurlandi er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á flestum leiðum.
Á Austur- og Suð-austurlandi er víðast greiðfært þótt hálkublettir eða hálka séu á köflum.
Breiðafjarðarferjan Baldur
Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.
Hálendisvegir
Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.