Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 3.12.2017

3.12.2017 6:36

Færð og aðstæður

Það er hálka allvíða á Suðurlandi en þó er autt bæði á Hellisheiði og í Þrengslum. Hálkublettir eru á Reykjanesbraut og Grindavíkurvegi.

Vegir eru víðast greiðfærir á Vesturlandi og Vestfjörðum þótt hálkublettir séu á fáeinum fjallvegum og fáfarnari leiðum. Sama er að segja um Norðurland, allt austur í Eyjafjörð en í Þingeyjarsýslum er sums staðar nokkur hálka eða jafnvel snjóþekja.

Færð er ekki að fullu könnuð á Austurlandi en þar er þó mikið autt.

Breiðafjarðarferjan Baldur

Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og  á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.

Hálendisvegir

Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.