Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 29.5.2018

29.5.2018 9:20

Brunaæfing í Norðfjarðargöngum í kvöld

Í kvöld, þriðjudagskvöldið 29. maí verður haldin brunaæfing í Norðfjarðargöngum og verður göngunum lokað á meðan eða frá kl. 19:30 til 22:30.

Fræsingar á Höfuðborgarsvæðinu

í dag, þriðjudaginn 29. maí er stefnt að því í kvöld að fræsa báðar akreinar á Bústaðarvegi, frá gatnamótum við Suðurhlíð að gatnamótum við brú yfir Kringlumýrabraut. Þrengt verður í eina akrein og búast má við lítilsháttar umferðartöfum milli kl. 19:00 og kl. 02:00.

Á morgun, miðvikudaginn 30. maí er stefnt að því að malbika tvær akreinar í hvora átt á Vesturlandsvegi, á milli hringtorgs við Langatanga og hringtorgs við Reykjaveg. Þrengt verður um eina akrein, að auki verður lokað akrein frá hringtorgi við Þverholt-Háholt niður á Vesturlandsveg vegna þrengsla. Búast má við lítilsháttar umferðartöfum milli kl. 9:00 og 17:00.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Akstursbann á hálendisvegum

Akstursbann er nú á fjölmörgum hálendisvegum og -slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Því miður ber talsvert á því að ökumenn virði ekki merkingar um þessar lokanir sem settar eru á til að hlífa bæði vegunum sjálfum og náttúrunni í kringum þá fyrir átroðningi og skemmdum sem auðveldlega verða á þessum árstíma. Því er rétt að árétta að það er lögbrot að fara inn á veg framhjá merkinu allur akstur bannaður.

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum þarf sums staðar að takmarka ásþunga umfram það sem almennt gerist. Sjá nánar hér.