Umferðarþjónusta - Tilkynning - 26.8.2018
26.8.2018
9:51
Framkvæmdir við Esjumela
Mánudaginn 27. ágúst um kl 6.00
verður hafin vinna við byggingu hringtorgs og undirganga fyrir gangandi
auk vega- og stígagerðar á Esjumelum við Norðurgrafarveg og verður
umferð um
Vesturlandsveg beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu.
Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst og eru
ökumenn hvattir til að virða merkingar á vinnusvæðinu.
Þingvallavegur lokaður
Þingvallavegur (36) verður lokaður allri umferð milli þjónustumiðstöðvarinnar og eystri gatnamótanna við Vallaveg (361) fram í október.
Hjáleið er um Vallaveg (361)
Sjá nánar hérKísilvegurinn (87) er lokaður
Kísilvegurinn, þjóðvegur 87 er lokaður ótímabundið vegna framkvæmda. Hjáleiðir eru merktar á svæðinu.
Viðgerð á Miðfjarðarárbrú
Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og því er umferð þar stýrt með ljósum. Brúin hefur reynst í verra ástandi en búist var við og nú er áætlað að vinnan standi fram í síðari hluta september.