Umferðarþjónusta - Tilkynning - 23.8.2018
Malbikun á Biskupstungnabraut (35)
Fimmtudaginn 23. ágúst verða malbikaðar báðar akreinar á Biskupstungnabraut í gegnum Reykholt. Vegurinn er lokaður og hjáleiðir merktar. Umferð sem kemur að norðanverðu verður send í gegnum Bræðratunguveg yfir á Skeiða- og Hrunamannaveg en þeim sem eiga erindi inn í Reykholt er hleypt í gegn. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 09:00 til kl. 22:00.
Föstudaginn 24. ágúst verða malbikaðar báðar akreinar á Biskupstungnabraut við Reykholt, austan við hringtorg hjá Bjarkarbraut. Annarri akreininni verður lokað í einu og umferð stýrt í gegnum vinnusvæðið. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 09:00 til kl. 13:00.
Föstudaginn 24. ágúst er einnig stefnt á að malbika báðar akreinar á Biskupstungnabraut við Borg í Grímsnesi. Annarri akreininni verður lokað í einu og umferð stýrt í gegnum vinnusvæðið. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 12:00 til kl. 22:00.