Umferðarþjónusta - Tilkynning - 23.6.2018
Malbikun
Verið er að malbika Skutulsfjarðarbraut á Ísafirði, milli hringtorgs og Vestfjarðavegar (60). Búast má við lítilsháttar umferðartöfum fram yfir helgi. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Lokanir vegna hjólreiðamóts á sunnudaginn
Krýsuvíkurvegur verður lokaður vegna Íslandsmóts í hjólreiðum, sunnudaginn 24. júní frá kl. 10:00 til 12:30 og á sama tíma verður Suðurstrandarvegur lokaður til austurs.
Hálendisvegir
Hálendisvegir eru óðum að opnast en engu að síður er enn akstursbann á allmörgum hálendisvegum og slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Rétt er að ítreka að það er lögbrot að fara inn á veg sem merktur er með skiltinu allur akstur bannaður. Sjá nánar hér
Lokanir í jarðgöngum undir Breiðadalsheiði
Vegna vinnu við vatnsvarnir verður Breiðadalsleggur (til/frá Önundarfirði) lokaður yfir nóttina virka daga, frá miðnætti til kl. 7:00. - Óljóst er hversu langan tíma þetta tekur en reikna má með megninu af júní. Þetta hefur ekki áhrif á umferð milli Súgandafjarðar og Skutulsfjarðar.
Viðgerð á Miðfjarðarárbrú
Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.