Umferðarþjónusta - Tilkynning - 23.2.2018
Ábendingar frá veðurfræðingi 23. febrúar kl. 08:45
Um leið
og hvessir má reikna með snjókomu og skafrenningi á fjallavegum. Suðvestanlands
á milli kl. 12 og 15, en síðan hlánar upp í 600-900 m hæð. Hviður allt að 40-45
m/s undir Eyjafjöllum frá 13 til 16. Á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli, einkum
frá 17 og fram yfir miðnætti.
Viðvörun
Búast má við að færð geti spillist á milli kl. 12.00 og 15.00 á Hellisheiði, Þrengslum og Mosfellsheiði þar til hlýnar.
Færð og aðstæður
Snjóþekja, hálka eða hálkublettir eru á Suð-vestanverðu landinu. Þæfingsfærð er á Kjósarskarði en ófært á Lyngdalsheiði.
Á Vesturlandi er snjóþekja, hálka eða hálkublettir. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Bröttubrekku.
Á Vestfjörðum er víða snjóþekja eða hálka. Þæfingsfærð er í Ísafirði.
Það er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á vegum á Norðurlandi vestra.
Á Norðaustur- og Austurlandi er víðast hvar greiðfært en hálkublettir yfir Mývatns- og Möðrudalsöræfi, Fagradal, Vatnsskarð eystra og Fjarðarheiði. Einnig er greiðfært með suðausturströndinni að Höfn en þar fyrir vestan eru hálkublettir eða hálka.
Skemmdir á slitlagi
Í því veðurfari sem hefur gengið yfir að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.
Grjóthrun í Hvalnesskriðum
Vegna mikillar úrkomu hefur verið töluvert grjóthrun í Hvalnesskriðum og eru vegfarendur beðnir að fara varlega.Vatnavextir í Fáskrúðsfirði
Vatn flæðir yfir veg á þremur stöðum í sunnanverðum Fáskrúðsfirði og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og fara varlega.Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum verður viðauki 1 felldur úr gildi og ásþungi miðaður við 10 tonn frá kl. 16:00 í dag, föstudag 23. febrúar á Snæfellsnesvegi 54 frá Borgarnesi og á öðrum vegum á Snæfellsnesi.
Viðauki 1 hefur verið felldur úr gildi á öllum vegum í Árnessýslu, Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu nema á Hringvegi frá Reykjavík að Selfossi.
Þingskálavegur
Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.