Umferðarþjónusta - Tilkynning - 12.2.2019
Ábending frá veðurfræðingi þriðjudaginn 12. febrúar kl. 08.30
Kröpp lægð fer í dag norður um vestanvert landið. Varað er við sviptingum í vindi saman með snjó og krapa frá um kl. 11. Einkum á Snæfellsnesi, sunnanverðum Vestfjörðum, Bröttubrekku, Holtavörðuheiði og norður í land frá um kl. 11 og þar til síðdegis.
Færð á vegum
Suðvesturland: Víða eru vegir greiðfærir en eitthvað um hálkubletti. Flughálka er á Grafningsvegi.
Vesturland: Hálka og óveður er á Holtavörðuheiði. Hálka eða snjóþekja á flestum öðrum leiðum. Flughálka er í Skorradal og Andakíl.
Vestfirðir: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja á flestum vegum.
Norðurland: Hálka eða snjóþekja á flestum
leiðum, hvasst er og víða skafrenningur. Óveður er á Þverárfjalli og í Fljótum.
Norðausturland:
Snjóþekja
eða hálka á flestum leiðum og víða skafrenningur. Krapi er á Brekknaheiði.
Austurland: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja á
vegum.
Suðausturland: Hálkublettir á flestum leiðum.
Suðurland: Suðurlandsvegur er að mestu greiðfær en hálkublettir á útvegum.
Ábending um hálkuvarnir
Þegar kalt er í veðri og stífur vindur getur hálkuvörn bundist illa við yfirborð vegar. Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Yfirborð vegar getur því orðið hált áfram þrátt fyrir hálkuvarnir.
Framkvæmdir á Suðurlandsvegi
Vegna vinnu við að breikkun Hringvegar er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju. Á afmörkuðum köflum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við vegamótin að Hringvegi. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæðinu. Áætluð verklok eru 1. mars nk.
Vaðlaheiðargöng
Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/