Vígsla brúar yfir Jökulsá á Sólheimasandi
Engin einbreið brú lengur á Hringvegi frá Reykjavík til Kirkjubæjarklausturs
Ný brú yfir Jökulsá á Sólheimasandi var vígð í dag þegar Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra, Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar, Einar Freyr Elínarson, sveitarstjóri Mýrdalshrepps og Anton Kári Halldórsson sveitarstjóri Rangárþings eystra klipptu á borða í blíðskaparveðri á miðri brúnni síðdegis í dag.
Innviðaráðherra tók til máls og sagði meðal annars:
„Með opnun brúarinnar leysum við af hólmi síðustu einbreiðu brúna á Hringvegi 1 frá Reykjavík austur fyrir Kirkjubæjarklaustur.
Fyrir fjórum árum síðan, voru 37 brýr á Hringveginum einbreiðar, nú eru þær 32 og verða 31 við opnun nýrrar brúar í dag. Og það er ekkert lát á framkvæmdum. Ég er vongóður um að okkur takist að fækka þeim niður í 29 strax fyrir árslok því það stendur til að opna nýjar brýr á Hverfisfljóti og Núpsvötnum síðar á árinu.
Þeim fer þá ört fækkandi einbreiðu brúnum á leiðinni frá Höfn í Hornafirði til Reykjavíkur þegar brúin yfir Hornafjarðarfljót verður orðin að veruleika. Gangi áætlanir Vegagerðarinnar upp verður talan komin niður í 26 eftir 2 ár, frá 37 niður í 26 á 6 árum.“
Forstjóri Vegagerðarinnar sagði einnig nokkur orð og las meðal annars hluta úr ritgerð Jóns Trausta sem hann skrifaði í upphafi 20. aldar og lýsa vel hversu illan bifur fólk hafði á Jökulsá á Sólheimasandi sem var mikill farartálmi og heimti mörg líf þar til hún var fyrst brúuð árið 1921.
„Hún er samfelldur, beljandi straumstrendur frá jöklinum og fram í sjó, þar sem hún tekur brimrótið fangbrögðum. Alla þá leið orgar hún eins og gráðugt villidýr og byltir til stórum jökulhnullungum í botninum. Vatnið er móbrúnn jökulkorgur, svo þykkur, að öldurnar geta varla freytt, og svo daunillur, að fýluna af honum leggur vestur á miðjan sand.
Hvergi er vað á henni, sem treysta má. Hún kastar beljandi höfuðstrengnum sitt á hvað og rótar til mölinni undir sér; grefur sig niður á þessum staðnum, hleður upp eyrum annars staðar, rennur sums staðar dreift, en sums staðar í einu lagi. Aldrei er hún eins degi lengur.“
Að lokinni vígslunni ók ráðherra fyrstur yfir brúna en strax á eftir honum kom Hörður Brandsson sem fyrstur ók yfir brúna sem opnuð var árið 1967. Hörður er enn með sama bílnúmerið og var á bílnum sem ók yfir á sínum tíma, Z 25. Þess má geta að Hörður er sonur hins víðfræga Brands Stefánssonar eða Vatna-Brands sem var mikill brautryðjandi í samgöngumálum Vestur-Skaftfellinga. Hann keypti fyrst bíl árið 1927 og hóf stuttu síðar farþegaflutninga milli Víkur og Markarfljóts þar sem fólk var reitt yfir á hestum.
Nánar um nýju brúna yfir Jökulsá á Sólheimasandi
- Þetta er þriðja brúin sem byggð er yfir þessa alræmdu á. Sú fyrsta var byggð 1921 og sú næsta 1967.
- Verkið Hringvegur (1-b5) um Jökulsá á Sólheimasandi var boðið út í september 2020, samið við ÞG verktaka í desember 2020 og framkvæmdir hófust í janúar 2021.
- Tilboðið hljóðaði upp á rúmar 734 m.kr.
- Verkfræðistofan Verkís sá um hönnunina.
- Mannvit sá um framkvæmdaeftirlit.
- Verkið felst í byggingu brúar yfir Jökulsá á Sólheimasandi ásamt endurgerð vegakafla Hringvegar beggja vegna (um 940 m).
- Brúarvinnuflokkur Vegagerðarinnar byggði bráðabirgðabrú norðan við gömlu brúna sem var notuð meðan á framkvæmdum stóð.
- Brúin er 163 m löng, tvíbreið, steinsteypt, eftirspennt bitabrú í fimm höfum. Heildarbreidd er 10 m.
- Millisökklar brúarinnar sem byggð var 1967 voru nýttir fyrir hið nýja mannvirki.
- Brúin liggur rúmum meter hærra en eldri brú en vegurinn vestan brúarinnar hefur verið lækkaður til að beina flóðvatni frá brúarmannvirkinu.
- Umferð var hleypt á brúna 26. september.