Viðtal við Helga Hallgrímsson fyrrverandi vegamálastjóra
Rætt við Helga um uppvöxt, skólagöngu og störf hans hjá Vegagerðinni.
Helgi Hallgrímsson, fv. vegamálastjóri, lést 8. október síðastliðinn, 87 ára að aldri.
Helgi var verkfræðingur hjá Vegagerðinni 1958-61, hjá ráðgjafarfyrirtækinu Chr. Ostenfeld & W. Jönsson (nú Cowiconsult) í Kaupmannahöfn 1961-1962 og hjá Vegagerðinni frá 1962. Hann var umdæmisverkfræðingur á Austurlandi til 1965, deildarverkfræðingur í brúardeild 1965-1972, yfirverkfræðingur þar frá 1972, forstjóri tæknideildar 1976, aðstoðarvegamálastjóri 1985 og vegamálastjóri frá 1992 til starfsloka 2003.
Ítarlegt viðtal við Helga birtist í fréttabréfinu. „Vegagerðin innanhúss“ fyrir sex árum en það var tekið af samstarfsmanni Helga til margra ára, Gunnari Gunnarssyni, og skrifað upp af Viktori Arnari Ingólfssyni útgáfustjóra Vegagerðarinnar.
Viðtalið birtist í þremur tölublöðum 2014 og 2015 en hefur nú verið klippt saman í heildstætt viðtal þar sem Gunnar og Helgi ræða saman um uppvöxt og skólagöngu Helga og störf hans hjá Vegagerðinni.