Fréttir
  • Nesvegur viðgerð
  • Nesvegur viðgerð
  • Nesvegur viðgerð
  • Nesvegur viðgerð
  • Nesvegur viðgerð
  • Nesvegur viðgerð

Viðgerðir á Nesvegi (425) vestan Grindavíkur

gert við skemmdir til bráðabirgða í öryggisskyni

13.11.2023

Vegagerðin er langt komin með að gera við skemmdir sem hafa orðið á Nesvegi (425) vestan Grindavíkur á tveimur stöðum. Um bráðabirgða viðgerðir eru að ræða en þær eru gerðar til þess að viðbragðsaðilar og almannavarnir eigi greiða leið um svæðið og til þess að tryggja greiðan aðgang að Grindavík ef nauðsyn ber til. 

Allir vegir til Grindavíkur eru lokaðir og umferð um þá óheimil. Þetta er því neyðarráðstöfun til að auka öryggi en ekki fyrir almenna umferð.

Uppfært 14.11.

Viðgerð er lokið en vegurinn er áfram lokaður:

Nesvegur viðgerð lokið