Fréttir
  • Sjólag er  vefur með upplýsingum um sjólag-, veður- og sjávarfallsspár.
  • Nýjustu upplýsingar um færðina er á umferdin.is
  • Nýi vefurinn er mun aðgengilegri, sérstaklega í snjalltækjum.

Umferdin.is og Sjolag.is fá verðlaun í Vínarborg

Hönnunarstofan Kolofon hlaut á dögunum tvenn verðlaun í IIIDawards — alþjóðlegri samkeppni á sviði upplýsingahönnunar. Verðlaunin voru veitt fyrir verkefni unnin fyrir Vegagerðina og Strætó.

7.6.2023

Vefirnir sjolag.is og umferdin.is sem Kolofon hannaði og forritaði fyrir Vegagerðina hlutu saman verðlaun í flokknum Emergency and Safety. Markmið verkefna í þeim flokki er að miðla á sem bestan máta upplýsingum um mögulegar hættur og hvernig skal forðast þær. 

Vefirnir tveir eru í raun verkfæri fyrir ólíka markhópa en sinna mjög svipuðu hlutverki, að fræða ferðalanga á sjó og landi hvernig aðstæður eru á og við Ísland, og skipa því mikilvægan sess í öryggisþáttum þjóðarinnar. Hér skiptir því gífurlega miklu máli að mikið magn gagnvirkra upplýsinga sé aðgengilegt á skýran og skilvirkan máta.

Hanna og þróa skilvirkar lausnir

„Leiðarljós okkar á Kolofon er að hanna og þróa skilvirkar lausnir á praktískum vandamálum, þar sem vandað handverk er í fararbroddi. Okkur þykir því sérstaklega vænt um þessar viðurkenningar frá helsta fagfólki á sviði upplýsingahönnunar og hvetja þau okkur til að halda áfram með viðskiptavinum okkar að búa til skýrar lausnir með dass af sköpunargleði,“ segir Hörður Lárusson hjá Kolofon, sem tók á móti verðlaununum í Vínarborg þann 24. maí síðastliðinn.

IIIDawards verðlaunin eru veitt á þriggja ára fresti af IIID (International Institute of Information Design), sem er alþjóðleg stofnun sem m.a. berst fyrir því að upplýsingar fyrir daglegt líf, viðskipti, menntun og vísindi séu sett fram á sem skýrastan máta. Veitt eru verðlaun í 15 flokkum. Á meðan hönnun og almennt útlit verkefnanna skipar stóran sess í vali dómnefndarinnar, þá er ekki síður horft til skipulags, framsetningu og skýrleika verkefnanna.

Kolofon hlaut einnig verðlaun fyrir heildarleiðarkerfi Strætó í flokknum Traffic and Public Transport. Leiðakerfi Strætó hefur á undanförnum árum verið í algjörri endurnýjun og allir fletir þess teknir í rýni og uppfærðir. Kort, tímatöflur og leiðarskilti voru teiknuð fyrir stoppin, auk þess sem lifandi upplýsingar um næstu vagna eru aðgengilegar í skýlum með skjáum. Vefur Strætó var endurnýjaður frá grunni, bæði með nýju útliti og virkni. Allt útlitið hefur því verið hannað til að virka saman sem ein heild til að veita notendunum greiða leið að sem bestum upplýsingum.

Sjá nánar á vef Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs.