Umferðin á Hringveginum eykst í september
hraðinn í aukningu umferðar minnkar
Umferðin á Hringveginum í nýliðnum september mánuði jókst um tæp sex prósent sem er töluvert meira en að meðaltali í september mánuði frá því árið 2005. Aukningin er hinsvegar töluvert minni en hún hefur verið undanfarin nokkur ár. Umferðin jókst mest á Suðurlandi en hún dróst saman á Norðurlandi. Það sem af er ári hefur umferðin aukist um 4,4 prósent.
Milli
mánaða
Umferðin
yfir 16 lykilteljara á Hringvegi jókst um 5,9% í nýliðnum septembermánuði borið
saman við sama mánuð á síðasta ári.
Nú hefur umferðin vaxið að jafnaði um 4,3% í september frá árinu 2005, þessi aukning nú er því vel umfram meðaltalsvöxt á umræddu tímabili.
Mest jókst
umferðin um Suðurland eða um 10,5% en 2,1% samdráttur varð í umferðinni um Norðurland.
Umferðin um teljara á Mýrdalssandi jókst mest eða um 16,5% en 8,6% samdráttur
mældist yfir teljara í Kræklingahlíð, norðan Akureyrar.
Frá
áramótum
Nú hefur
umferðin, það sem af er ári, vaxið um 4,4% frá áramótum borið saman við
sama tímabil á síðasta ári. Mest hefur umferðin vaxið á Suðurlandi eða um 8,2% en minnst um Norðurland eða um 2,1%.
Umferð
eftir vikudögum
Frá áramótum
hefur mest verið ekið á föstudögum en minnst á þriðjudögum. Umferðin
hefur aukist hlutfallslega mest á mánudögum en hins vegar dregist saman um 1,3%
á sunnudögum.
Horfur
út árið
Núna
stefnir í að umferðin, yfir 16 lykilteljara á Hringvegi, geti aukist um
4,5%. Þó að þetta sé þó nokkur aukning, gangi hún eftir, þarf að
fara aftur til áranna 2012 og 2013 til að finna minni aukningu á milli ára.