Umferðin á Hringvegi eykst
meiri umferð í janúar í ár
Umferðin í janúarmánuði reyndist 5,4 prósentum meiri en í sama mánuði í fyrra og því hefur umferðin á Hringvegi í þessum mánuði aldrei verið meiri. Umferðin jókst mest um Vesturland. Mest er ekið á föstudögum.
Milli
mánaða 2018 og 2019
Talsverð
aukning varð á umferð um 16 lykilteljara Vegagerðarinnar á Hringvegi í nýliðnum
janúar miðað við sama mánuð á síðasta ári en umferðin jókst um 5,4%. Nýtt met
var því slegið í janúarumferð á Hringvegi ef marka má áðurnefnda
lykilteljara. Umferðin fór núna vel yfir 60 þúsund bíla múrinn og mældist
rúmlega 62 þúsund ökutæki á sólarhring, samtals fyrir alla staðina.
Mest jókst umferðin um Vesturland eða um 9,9% en minnst um Austurland eða um 2,8%.
Hvað einstaka talningarstaði varðar þá jókst umferðin mest á talningarstað undir Hafnarfjalli eða um 12,0% en minnst varð aukningin um Hringveg á Mýrdalssandi eða 0,3%.
Umferð
Vikudaga.
Umferðin í
nýliðnum mánuði reyndist mest á föstudögum en minnst á þriðjudögum eins og
gjarnan er á þjóðvegum úti á landi.
Hlutfallslega jókst umferðin mest á sunnudögum eða um 17,1% en 6,2% samdráttur varð í umferð á laugardögum.
Talnaefni