Fréttir
  • Þrengingar verða til vesturs fram á föstudag.

Þrengingar á Hafnarfjarðarvegi vegna framkvæmda

Þrengingum vestan megin senn aflétt en þrengt austan megin til föstudags af öryggisástæðum

19.9.2023

Framkvæmdir vegna nýrra strætóstöðva við Hafnarfjarðarveg / Kringlumýrarbraut standa yfir. Þrenging á veginum vestan megin, þ.e. á leiðinni frá Reykjavík, verður senn aflétt en þrengja þarf veginn austan megin, á leiðinni til Reykjavíkur, fram á föstudag til að tryggja öryggi vegfarenda og starfsfólks. Unnið er að því að fylla skurði og þegar því er lokið verður malbikað. Áætlað er að malbika í næstu viku en það verður gert utan háannatíma.

Í verkinu felst einnig færsla og lenging fráreinar af Hafnarfjarðarvegi (40-01) að Suðurhlíð. Gera á stíga að strætóstöðvunum, þvera stíg á Suðurhlíð og þrengja syðsta hluta Suðurhlíðar. Hljóðmön verður aðlöguð að þessum breytingum, niðurföll og ljósastaurar verða færðir til, auk þess sem nýir ljósastaurar verða settir upp. 

Nýjar strætóstöðvar munu bæta aðgengi íbúa í Fossvogi og Suðurhlíðum að þeim strætóleiðum sem fara þarna um, en kallað hefur verið eftir þessum úrbótum af hálfu íbúa. Jafnframt munu nýjar strætóstöðvar bæta tengingar við stóra vinnustaði á borð við Landspítalann í Fossvogi og Hrafnistu við Sléttuveg. Þá koma stöðvarnar og nýir stígar til með að tengja Fossvog og Suðurhlíðar betur við stíga sem liggja að Háskólanum í Reykjavík og stígum við Öskjuhlíð. 

Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát við vinnusvæðið, sem er þröngt og starfsfólk og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum. 

Vegagerðin biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þessar framkvæmdir kunna að hafa í för með sér fyrir vegfarendur.