Sundabraut - Morgunfundur hjá Vegagerðinni í streymi
Framkvæmd í undirbúningi og áherslur í umhverfismati
https://livestream.com/accounts/5108236/events/10981950
Hægt verður að senda fyrirspurnir á Slido.com. Lykilorðið er sundabraut.
Fyrirhuguð framkvæmd verður til kynningar, ásamt áherslum í komandi umhverfismati. Farið verður yfir hvaða valkostir eru til skoðunar varðandi legu Sundabrautar, auk tenginga hennar við byggð og atvinnustarfsemi. Auk fulltrúa Vegagerðarinnar verða á fundinum fulltrúar verkfræðistofunnar EFLU sem er ráðgjafi í Sundabrautarverkefninu.
Dagskrá fundarins:
· Sundabraut. Framkvæmd í undirbúningi. Helga Jóna Jónasdóttir, verkefnisstjóri Sundabrautar.
· Sundabraut. Áherslur í umhverfismati. Ragnhildur Gunnarsdóttir, verkfræðingur hjá EFLU.
Fundarstjóri: G. Pétur Matthíasson, forstöðumaður samskiptadeildar Vegagerðarinnar.
Frestur vegna athugasemda er til 19. október 2023
Frekari upplýsingar um Sundabrautarverkefnið er að finna á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar en opið er fyrir umsagnir og athugasemdir til 19. október 2023. Sjá hér:
- Vegagerðin, í samvinnu við Reykjavíkurborg, hefur lagt fram matsáætlun vegna umhverfismats Sundabrautar .
- Með þessari verklýsingu eru boðaðar breytingar á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040 sem varða legu og útfærslu Sundabrautar: Sundabraut - verkefnislýsing - breytingar á aðalskipulagi AR40