Fréttir
  • Sprungur í nýrri viðgerð á Grindavíkurvegi við Svartsengi.
  • Landriss gætir á Grindavíkurvegi og nokkrar sprungur hafa myndast.
  • Sprungur hafa myndast nær Grindavík en sést hefur áður.
  • Sprungur á Grindavíkurvegi nærri Svartsengi.

Sprungur myndast í Grindavíkurvegi

Skemmdir í nýrri viðgerð nærri Svartsengi

28.12.2023

Landrissins í Svartsengi gætir á Grindavíkurvegi. Þar hafa sprungur myndast og breikkað nokkuð frá í gær. Sprungur hafa myndast nær Grindavík en áður en auk þess eru farnar að myndast sprungur á þeim stað sem búið var að gera við nærri þeim stað þar sem landrisið á sér nú stað.
Eftirlitsmaður Vegagerðarinnar segist finna talsverðan mun á veginum í dag miðað við í gær, miðvikudag.
Ekki er þörf á að loka veginum en Vegagerðin fylgist grannt með þróun mála í góðri samvinnu við lögreglu og Almannavarnir.