Fréttir
  • Ari Sigurðsson, Bryndís Friðriksdóttir og Dofri Eysteinsson.
  • Arnarnesvegur, 3. áfangi. Séð í NA eftir nýjum Arnarnesvegi.
  • Arnarnesvegur, 3. áfangi. Horft í SV eftir nýjum Arnarnesvegi.
  • Arnarnesvegur, 3. áfangi. Gatnamótin við Breiðholtsbraut.

Skrifað undir verksamning vegna Arnarnesvegar

Samið við Loftorku og Suðurverk

31.7.2023

Bryndís Friðriksdóttir, svæðisstjóri Höfuðborgarsvæðis Vegagerðarinnar,
Ari Sigurðsson, forstjóri Loftorku, og Dofri Eysteinsson, forstjóri Suðurverks, skrifuðu undir verksamning í húsakynnum Vegagerðarinnar þann 28. júlí. Verkið snýst um þriðja áfanga Arnarnesvegar, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar. Um er að ræða nýbyggingu vegar á um 1,9 km kafla, auk þess sem byggð verða brúarmannvirki og undirgöng. Undirbúningur hefst strax í þessari viku og búist er við að framkvæmdir hefjist um miðjan ágúst.

Markmiðið með framkvæmdinni er að auka umferðaröryggi og stytta ferðatíma, auk þess að létta verulega á umferð um Vatnsendaveg en í Kópavogi, austan Reykjanesbrautar, búa hátt í 15 þúsund manns. Vegkaflinn mun bæta til muna viðbragðstíma fyrir neyðaraðila í efri byggðum Kópavogs og Reykjavíkur.

Um Arnarnesveg:

Framkvæmdirnar felast í nýbyggingu Arnarnesvegar frá Rjúpnavegi að Breiðholtsbraut með tveimur hringtorgum, vegbrú yfir Breiðholtsbraut og einum ljósastýrðum vegamótum ásamt breikkun Breiðholtsbrautar frá Jaðarseli að Vatnsendahvarfi. 

Í verkinu eru tvenn undirgöng og tvær brýr fyrir gangandi og hjólandi, stofnstígar og stígatengingar. Auk þess tilheyrir verkinu lagning nýrrar hitaveituæðar Veitna, Suðuræðar II. Einnig verður unnið við hljóðdeyfigarða og hljóðveggi, regnvatnslagnir, snjóbræðslulagnir, settjörn, regnbeð, götulýsing og lagnir fyrir upplýsingakerfi Vegagerðarinnar.

Auk vegagerðarinnar verða eftirfarandi mannvirki byggð:

• Akstursbrú yfir Breiðholtsbraut með aðskildum göngu- og hjólastíg.
• Göngu- og hjólabrú yfir Arnarnesveg sem tengir stofnstíga milli Reykjavíkur og Kópavogs.
• Undirgöng undir Breiðholtsbraut við Suðurfell / Jaðarsel.
• Undirgöng undir Arnarnesveg við Rjúpnaveg.
• Hringtorg á mótum Arnarnesvegar og Rjúpnavegar.
• Hringtorg á mótum Arnarnesvegar og Vatnsendavegar.
• Stofnstígur gangandi og hjólandi frá Rjúpnavegi yfir í Elliðaárdal.
• Göngu- og hjólabrú á Dimmu.

Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Reykjavíkur, Kópavogs, Betri samgangna ohf., Veitna og Mílu. Verkið er fjármagnað af Samgöngusáttmálanum, sem gerður var 2019 milli ríkisins og sveitarfélaganna sex á höfuðborgarsvæðinu, þar sem markmiðið er m.a. að stuðla að auknu umferðaröryggi, hagkvæmum, greiðum og skilvirkum samgöngum á höfuðborgarsvæðinu með jafnri uppbyggingu innviða allra samgöngumáta.

Myndband af fyrirhuguðum framkvæmdum. 

https://www.youtube.com/watch?v=Mz8K9TlQDT8