Fréttir
  • Bergþóra Þorkelsdóttir og Íris Róbertsdóttir skrifa undir samninginn
  • Bergþóra Þorkelsdóttir og Íris Róbertsdóttir skrifa undir samninginn

Skrifað undir þjónustusamning um rekstur Herjólfs

forstjóri Vegagerðarinnar og bæjarstjóri skrifa undir

27.10.2023

Skrifað var undir endurnýjaðan þjónustusamning um rekstur Herjólfs í dag en það gerðu Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar og Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. Samningurinn gildir frá 1. janúar 2024 til 31. desember 2026 með möguleikanum á framlengingu í tvö ár til viðbótar.

Samningurinn byggir á reynslu síðustu ára í rekstri Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs sem Herjólfur ohf. hefur séð um fyrir Vestmannaeyjabæ.  

Reynsla í rekstri skipsins hefur verið lærdómsrík þar sem verið er að láta reyna á nýja tækni á rafmagnsknúnu skipi, tengiltvinnferju.  Skipið hefur reynst vel í alla staði og horfa aðilar samnings bjartir fram á veginn í framtíð siglinga með Herjólfi á milli lands og Eyja.

Verðmæti samningsins er áætlað á ársgrundvelli 818 m.kr.  en er háð fjárveitingum ríkissjóðs á hverju ári.

Bergþóra Þorkelsdóttir sagði ánægjulegt að hafa endurnýjað samninginn og halda þannig áfram að þróa reksturinn því í raun hafi verið um þróunarverkefni að ræða síðan að nýr Herjólfur tók við siglingum.