Fréttir
  • Teikning af nýrri brú og vegi

Skriðdals- og Breiðdalsvegur (95) í Múlaþingi. Ný brú á Gilsá á Völlum

kynning á fyrirhugaðri framkvæmd

20.4.2021

Vegagerðin kynnir fyrirhugaðar framkvæmdir við nýja 46 m langa brú á Skriðdals- og Breiðdalsvegi (95) á Gilsá á Völlum í Múlaþingi. Í tengslum við byggingu nýrrar brúar þarf að endurbyggja Skriðdals- og Breiðdalsveg á 1,2 km löngum kafla.

Vegagerðin áætlar að vegur og brú verði byggð árið 2021 og hægt verði að taka mannvirkið í notkun haustið 2021.

Markmið framkvæmdarinnar er að auka umferðaröryggi og stuðla að greiðari samgöngum á Skriðdals- og Breiðdalsvegi. Með nýjum vegi og nýrri tvíbreiðri brú á Gilsá mun umferðaröryggi aukast til mikilla muna og umferð um svæðið verða greiðari en hún er nú.

Sjá nánar hér þar sem finna má kynningarskýrsluna og fylgiskjöl.