Fréttir
  • Hringtorgið er lýst upp með bláum, rauðum og hvítum litum.
  • Vegagerðin vill leggja sitt af mörkum til að minna á Mottumars.

Samstöðulýsing á hringtorgi

Hringtorg á Arnarnesvegi blátt, rautt og hvítt

8.3.2024

Hringtorgið á Arnarnesvegi yfir Reykjanesbraut hefur verið lýst upp í bláum, rauðum og hvítum litum en með því vill Vegagerðin sýna samstöðu og vekja athygli á Mottumars, árlegu átaki Krabbameinsfélagsins í baráttunni gegn krabbameinum hjá körlum.  

Markmiðið með Mottumars er að hvetja alla menn og fjölskyldur þeirra til að vera meðvitaðir um einkenni krabbameina og sinna forvörnum, sem og að afla fjár sem gerir félaginu kleift að sinna fræðslu, forvörnum, rannsóknum og ráðgjöf fyrir karlmenn. Þetta árið er lögð áhersla á gildi hreyfingar sem forvarnir gegn krabbameinum. 

Hér má finna nánari upplýsingar um Mottumars.

Myndirnar tók Vilhelm Gunnarsson.