Fréttir
  • Ferjan Röst mun líklega hefja siglingar á Breiðafirði seinni hluta októbermánaðar.

Samið um kaup á ferjunni Röst

Norska ferjan tekur við ferjusiglingum á Breiðafirði

7.7.2023

Vegagerðin hefur samið við Torghatten Nord um kaup á ferjunni Röst. Skipið tekur að óbreyttu við ferjusiglingum á Breiðafirði í haust og leysir þar með ferjuna Baldur af hólmi. Kaupin koma í kjölfar útboðs þar sem einungis fékkst eitt tilboð. Upphaflega stóð til að leggja af ferjusiglingar á Breiðafirði við lok samnings við Sæferðir vorið 2023 en ákveðið var breyta þeirri ákvörðun og  halda áfram siglingum í ljósi þess að miklar breytingar hafa orðið á atvinnustarfsemi á sunnanverðum Vestfjörðum bæði hvað varðar uppbyggingu fiskeldis og ferðaþjónustu.

Sú ferja er þjónað hefur í ferjusiglingum á Breiðafirði hefur sætt gagnrýni bæði vegna öryggis og aðbúnaðar við farþega. Í ljósi þessa var strax árið 2021 farið að kanna hvort hægt væri að finna annað skip sem uppfyllti þær kröfur sem settar eru fyrir ferjusiglingar á Breiðafirði. Gerð var krafa um að  skipið væri  búið tveimur aðalvélum og hefði haffærni fyrir C svæði en siglingaleiðin um Breiðafjörð flokkast sem C svæði.

Kannað var hvort Herjólfur III gæti sinnt ferjusiglingum á leiðinni en það þótti ekki raunhæfur kostur. Herjólfur er ekki gerður til siglinga inni á fjörðum og er þungur og dýr í rekstri. Auk þess getur hann ekki  lagst að núverandi hafnarmannvirkjum, og  ekki sinnt flutningum í Flatey.

Afar fáar ferjur standa til boða sem geta siglt á C  hafsvæði, eru með tvær vélar og geta jafnframt notast við núverandi hafnarmannvirki. Því var því mjög áhugavert að ferjan Röst stóð til boða  og mun þá taka við þjónustu á Breiðafirði í beinu framhaldi af Baldri, og þar með myndað samfellu í siglingum yfir Breiðafjörð. Vegagerðin hefur því boðið út rekstur ferju á Breiðafirði og gerir ráð fyrir að gera samning við rekstraraðila ferjunnar núna í sumar.

Ferjan Röst er smíðuð 1991, tekur 250 farþega, rúmar fimm stóra flutningabíla. Í útboði Vegagerðarinnar um rekstur Breiðafjarðarferju 2023-2026 er miðað við að Röst sigli sömu áætlun og Baldur á ferjuleiðinni Stykkishólmur – Flatey – Brjánslækur – Flatey - Stykkishólmur. Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Afhending á ferjunni verður eigi síðar en 15. september og tekur þá við skoðun ytra og sigling til Íslands. Þá fer hún í slipp hjá Vélsmiðju Orms og Víglundar ehf. í Hafnarfirði sem átti lægsta boð í breytingar sem þarf að gera til að skipið geti þjónað siglingum á Breiðafirði. Þessar breytingar fela m.a. í sér að koma fyrir nýjum þilfarskrana, landfestuvindum, færa til lyftibjörgunarbáta, útbúa geymslusvæði á þilfari og mála skipið að utan. Gert er ráð fyrir að siglingar hefjist seinni hluta októbermánaðar.