Fréttir
Reisa nýja göngubrú yfir Jökulsá í Lóni
Brúarvinnuflokkur Vegagerðarinnar vinnur þarft verk
Göngubrú yfir Jökulsá í Lóni eyðilagðist í aftakaveðri um síðustu áramót. Nú er unnið að því að reisa nýja brú enda er hún mikilvæg fyrir ferða- og göngufólk sem er á ferðinni um Lónsöræfin. Áin getur verið hættuleg á sumrin þeim sem reyna að vaða hana á leið inn að Múlaskála.Ekki er auðvelt fyrir brúarvinnuflokk Vegagerðarinnar að koma efnum og tækjum langar vegleysur að þessum afskekkta stað eins og sjá má í þessari frétt úr kvöldfréttum RÚV sunnudaginn 19. maí.
Verkefnið er kostnaðarsamt en gróf kostnaðaráætlun hljómar upp á um 20 milljónir króna. Vegagerðin greiðir hluta en annað verður að fjármagnast eftir öðrum leiðum. Því hefur Ferðafélag Austur-Skaftfellinga hafið söfnun.