Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 28. október 2022
Fjölbreytt dagskrá - skráning stendur yfir
Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 2022 verður haldin föstudaginn 28. október á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut, kl. 09.00-16.30. Fjölbreytt og spennandi dagskrá.
Almenn skráning - smelltu á hlekkinn.
Dagskráin er fjölbreytt og endurspeglar það margháttaða rannsókna- og þróunarstarf sem styrkt er af rannsóknasjóði Vegagerðarinnar.
Sextán rannsóknaverkefni verða til umfjöllunar og samhliða veggspjaldasýning með um 12 verkefnum. Listi yfir veggspjöld eru hér fyrir neðan.
Ráðstefnan hefur alla jafna verið fjölsótt af starfsfólki Vegagerðarinnar, starfsfólki ráðgjafa- og verkfræðistofa, verktaka og almenns áhugafólks um samgöngur og rannsóknir.
Á ráðstefnunni í ár verður mest fjallað um rannsóknir sem fengu fjárveitingar úr rannsóknasjóði Vegagerðarinnar árið 2021.
Styrkur rannsóknasjóðs Vegagerðarinnar liggur í því að styrkja verkefni á mjög breiðu fræðasviði þar sem ekki er endilega einblínt á hefðbundna vegagerð. Verkefnin falla þó undir fjóra almenna flokka sem eru: mannvirki, umferð, umhverfi og samfélag.
Ráðstefnustjóri verður Páll Valdimar Kolka.
Dagskráin
09:00 | Setning ráðstefnu, Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar |
09:10 | Byggjum grænni framtíð: Leiðin að vistvænni mannvirkjagerð, Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, verkefnisstjóri Byggjum grænni framtíð og teymisstjóri nýsköpunar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar |
09:30 | Aukið hlutfall á endurunnu malbiki í ný slitlög, Björk Úlfarsdóttir, Colas Ísland |
09:45 | Leir í malarslitlögum, Hafdís Eygló Jónsdóttir, Vegagerðin |
10:00 | ROADEX rannsóknir á umferðarminni vegum, Þorbjörg Sævarsdóttir, Vegagerðin |
10:15 | Kaffihlé og veggspjaldasýning |
10:45 | Ný tenging milli forsteypts stöpulveggjar og staðsteypts sökkuls, Franz Sigurjónsson, Háskóli Íslands |
11:00 | Betri kostnaðaráætlanir, Baldvin Einarsson og Guðrún María Guðjónsdóttir, EFLA |
11:15 | Staðsetningar- og eftirlitskerfi fyrir baujur sem nýtir DGNSS og LoraWan fjarskipti, Þorsteinn Sæmundsson, Háskóli Íslands |
11:30 | Fyrirspurnir |
11:45 | Hádegismatur |
13:00 | Samgöngumat - grunnur að leiðbeiningum, Ólöf Kristjánsdóttir, Mannvit, og Cecilía Þórðardóttir, Velocity Transport Planning |
13:15 | Vinstribeygjur - Slysagreining á mismunandi útfærslum varinna vinstribeygjufasa á ljósastýrðum gatnamótum höfuðborgarsvæðisins, Davíð Guðbergsson, VSÓ Ráðgjöf |
13:30 | Samanburður á ferðatíma Strætó og einkabílsins innan höfuðborgarsvæðisins, Daði Baldur Ottósson, EFLA |
13:45 | Deiliskipulag þjóðvega í þéttbýli, Andrea Kristinsdóttir, VSÓ Ráðgjöf |
14:00 | Kortlagning hávaða með CNOSSOS-EU, Ólafur Hafstein Pjetursson, Trivium ráðgjöf |
14:15 | Brýr í hringrásarhagkerfi, Magnús Arason, EFLA |
14:30 | Fyrirspurnir |
14:45 | Kaffihlé |
15:15 | Strandlínubreytingar á Suðausturlandi frá 1903 til 2021, Ingibjörg Jónsdóttir, Háskóli Íslands |
15:30 | Notkun fjarkönnunargagna til að ákvarða þröskulda fyrir skriðuhættu á Íslandi, Esther Hlíðar Jensen, Veðurstofan |
15:45 | Rannsóknir og vöktun á hreyfingum við vegstæði Siglufjarðarvegar um Almenninga með síritandi GNSS staðsetningatækni, Halldór Geirsson, Háskóli Íslands |
16:00 | Rannsóknir á tengslum veðurfarsbreytinga og hreyfinga á og við vegstæði Siglufjarðarvegar um Almenninga, Elías Arnar Nínuson, Háskóli Íslands |
16:15 | Fyrirspurnir |
16:30 | Ráðstefnuslit – léttar veitingar |
Veggspjaldasýning í forrými
1 | Áhrif loftslagsbreytinga á eiginleika meðal- og hárennsli íslenskra vatnasviða, Phillip Crochet, sjálfstæður ráðgjafi |
2 | Ástandsskoðun sprautusteypu í íslenskum veggöngum – 1. áfangi, Benedikt Ó. Steingrímsson, Guðbjartur Jón Einarsson, Matthías Loftsson og Freyr Pálsson. Mannvit og Vegagerðin |
3 | Greining á viðbragðstíma ökumanna, Daði Baldur Ottósson, Ásmundur Jóhannsson og Arna Kristjánsdóttir, EFLA og Akureyrarbær |
4 | Greining snjóflóða með mælitækjum á jörðu niðri - prófanir á Vestfjörðum, Harpa Grímsdóttir, Óliver Hilmarsson og Örn Ingólfsson, Veðurstofan |
5 | Grímsvatnahlaup 2021 og 2022, Eyjólfur Magnússon, Finnur Pálsson, Krista Hannesdóttir, Joaquin Belart, Sidney Gunnarsson og Benedikt Gunnar Ófeigsson, Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, Landmælingar Íslands og Veðurstofan |
6 | Klæðing: Hefur ummyndun áhrif á viðloðun steinefna?, Þorbjörg Hólmgeirsdóttir, Hafdís Eygló Jónsdóttir og Erla María Hauksdóttir, Mannvit og Vegagerðin |
7 | Landmótun fornra ísstrauma á Norðausturlandi, Nína Aradóttir og Ívar Örn Benediktsson, Háskóli Íslands |
8 | Malbiksrannsóknir 2022, Björk Úlfarsdóttir, Birkir Hrafn Jóakimsson og Pétur Pétursson, Colas Ísland og Vegagerðin |
9 | Slitþolin hástyrkleikasteypa 50 mm lag á brýr - þróun og blöndun – framhald, Gísli Guðmundsson, Helgi S. Ólafsson, Kjartan B. Kristjánsson, Gylfi Sigurðsson og Ólafur H. Wallevik, Háskólinn í Reykjavík, Tæknisetur og Vegagerðin. |
10 | The Flexible and Sustainable Port Network – Dealing with Uncertainty in the Port Planning Process, Majid Eskafi og Guðmundur F. Úlfarsson. EFLA og Háskóli Íslands |
11 | Using recycled construction wastes as wetland substrates for pollutant removal in cold climate, Selina Hube, Tarek Zaqout, Hrund Ólöf Andradóttir og Bing Wu, Háskóli Íslands |
12 | Þróun nýrrar tengingar milli forsteypts stoðveggjar og staðsteypts sökkuls í brúargerð, Rúnar Steinn Smárason og Ólafur Sveinn Haraldsson, Háskólinn í Reykjavík og Vegagerðin |
13 | 2-1 vegir: Þekking og reynsla frá löndum sem hafa innleitt 2-1 vegi, Ragnar Gauti Hauksson og Andri Rafn Yeoman, EFLA |