Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 2021
Skráning er hafin
Árleg Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar verður haldin í 20. sinn föstudaginn 29. október næstkomandi og fer fram á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut.
Ráðstefnan hefur skapað sér sérstöðu í ráðstefnuhaldi hér á landi því fáar ráðstefnur bjóða upp á jafn fjölbreytileg umfjöllunarefni. Ætíð kennir margra grasa á ráðstefnunni enda tekin fyrir 15-20 rannsóknarverkefni hverju sinni. Styrkur rannsóknasjóðs Vegagerðarinnar hefur legið í því að styrkja verkefni á mjög breiðu fræðasviði þar sem ekki endilega er einblínt á hefðbundna vegagerð. Verkefnin falla þó undir fjóra almenna flokka sem eru: mannvirki, umferð, umhverfi og samfélag.
Ráðstefnan hefur alla jafna verið fjölsótt af starfsmönnum Vegagerðarinnar, starfsmönnum ráðgjafa- og verkfræðistofa, verktaka og almennra áhugamanna um samgöngur og rannsóknir.
Á ráðstefnunni í ár verður mest fjallað um rannsóknir sem fengu fjárveitingar úr rannsóknasjóði Vegagerðarinnar árið 2020 en þó er það ekki einhlítt.
Beint streymi verður frá ráðstefnunni og hægt að skrá sig fyrir því í hlekknum hér að neðan.
Almenn skráning - smelltu á hlekkinn.
Dagskrá ráðstefnunnar | |
---|---|
9:00 - 9:15 | Setning - Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar |
9:15 - 9:45 | Náttúran og pólitíkin - Ari Trausti Guðmundsson, jarðfræðingur, fyrrv. alþingismaður og rithöfundur. |
9:45 - 10:00 | Malarslitlög - ekki bara drulla – Hafdís Eygló Jónsdóttir, Vegagerðin |
10:00- 10:15 | Tæring málma í andrúmslofti á Íslandi, Vigdís Bjarnadóttir og Baldvin Einarsson, Efla hf. |
10:15-10:45 | Hlé |
10:45 - 11:00 | Endurskoðun jarðtæknistaðalsins Eurocode 7, Þorgeir Helgason, Verkís hf., Davíð R. Hauksson, VSÓ Ráðgjöf ehf. og Þorri Björn Gunnarsson, Mannvit hf. |
11:00 - 11:15 | Slitþolin hástyrkleikasteypa 50 mm á brýr – þróun og blöndun, Helgi S. Ólafsson, Vegagerðin |
11:15 - 11:30 | Stauraundirstöður fyrir brýr, Andri Gunnarsson, Efla hf. |
11:30-11:45 | Fyrirspurnir |
11:45-13:00 | Hlé |
13:00 - 13:15 | Gagnvirkar hraðahindranir, Katrín Halldórsdóttir, Vegagerðin |
13:15 - 13:30 | Áhrif örflæðis í samgöngulíkani, Albert Skarphéðinsson, Mannvit hf. |
13:30 - 13:45 | Borgarskipulag og ferðavenjur á höfuðborgarsvæðinu, Harpa Stefánsdóttir, NMBU |
13:45 - 14:00 | Mælingar á færslu óstöðugra fláa í rauntíma og langtíma – Siglufjarðarvegur, Guðjón Örn Björnsson og Heiðar Karlsson, Vista ehf. og VSÓ Ráðgjöf ehf. |
14:00-14:15 | Notkun gagna veggreinis í umferðaröryggisstjórnun, Þorbjörg Sævarsdóttir, Vegagerðin |
14:15-14:30 | Farsímagögn í umferðarlíkan, Smári Ólafsson, VSÓ Ráðgjöf ehf. |
14:30-14:45 | Fyrirspurnir |
14:45-15:15 | Hlé |
15:15 - 15:30 | Endurheimt staðargróðurs á framkvæmdasvæðum, Steinunn Garðarsdóttir, LBHÍ |
15:30 - 15:45 | Grænar raforkulausnir fyrir vita byggðar á efnarafölum, Atli Már Ágústsson, Efla hf. |
15:45 - 16:00 | Sjálfbærnimat íslenskra vegaframkvæmda – tilviksrannsókn á nýjum Suðurlandsveg, Sandra Rán Ásgrímsdóttir, Mannvit hf. |
16:00 - 16:15 | Kortlagning á neðansjávarskriðum í Seyðisfirði og Norðfirði, Ögmundur Erlendsson og Anett Blischke, ÍSOR |
16:15 - 16:30 | Fyrirspurnir |
16:30 | Ráðstefnuslit - léttar veitingar |
Ráðstefnustjóri G. Pétur Matthíasson |