Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 2019
Fjöldi áhugaverðra fyrirlestra
Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar verður haldin í Hörpu, föstudaginn 1. nóvember 2019.
Ráðstefnan er nú haldin í átjánda sinn en henni er ætlað að endurspegla afrakstur hluta þess rannsókna- og þróunarstarfs, sem styrkt er af rannsóknasjóði Vegagerðarinnar.
Vegagerðin vinnur að innleiðingu Grænna skrefa í ríkisrekstri og hvetur þátttakendur til huga að lágmörkun umhverfisáhrifa, svo sem með notum á vistvænum ferðamáta til og frá ráðstefnunni og með því að taka þátt í úrgangsflokkun á staðnum.
Frestur til að skrá sig er til og með 30. október 2019. Þátttökugjald er 16.000 krónur og 4.500 krónur fyrir nema og eftirlaunaþega.
Skráning á rannsóknaráðstefnu Vegagerðarinnar 2019
Dagskrá ráðstefnunnar
Tími | Heiti fyrirlestrar |
---|---|
08:00-09:00 |
Skráning |
09:00-09:15 |
Setning |
09:15-09:45 |
Hvað mun okkur finnast? - Um gildismat framtíðarinnar, Bergur Ebbi, rithöfundur, ljóðskáld og ritgerðarsmiður. - Ágrip |
09:45-10:00 |
Notkun Coltrack við að gera malarvegi að bundu slitlagi á Íslandi, Björk Úlfarsdóttir, Malbikunarstöðin Hlaðbær Colas HF - Ágrip |
10:00-10:15 |
Endurvinnsla frálagsefna í vegagerð, Þorbjörg Sævarsdóttir, EFLA - Ágrip |
10:15-10:45 | Kaffi |
10:45-11:00 |
Umhverfisvæn brúarsteypa, Ólafur Wallevik, Rb við Nýsköpunarmiðstöð Íslands |
11:00-11:15 |
Úttektir og ástandsmat klæðinga á Vestfjörðum, Pétur Pétursson, PP-ráðgjöf - Ágrip |
11:15-11:30 |
Burðargeta steyptra brúa - brotprófun brúar á Steinavötn, Guðmundur Valur Guðmundsson, Vegagerðin - Ágrip |
11:30-11:45 |
Þróun á kerfi sjávarborðsmælinga, G.Orri Gröndal, Vegagerðin - Ágrip |
11:45-12:00 |
Umræður og fyrirspurnir |
12:00-13:00 |
Matur |
13:00-13:15 |
Mikilvægi mótlægra umferðarljósa, Haraldur Sigþórsson, VHS - Ágrip |
13:15-13:30 |
Slysagreining. Ávinningur af óhindruðum beygjustraumum. Anna Guðrún Stefánsdóttir, Verkís - Ágrip |
13:30-13:45 |
Rannsóknarverkefni um mat á tíðni rauðljósaaksturs, Berglind Hallgrímsdóttir, EFLA - Ágrip |
13:45-14:00 |
Áhrif 5G á samgönguinnviði í framtíðinni, Hrönn Karolína Sch. Hallgrímsdóttir, Mannvit - Ágrip |
14:00-14:15 |
Samflutningur farþega og farms - bættar almenningssamgöngur á landsbyggðinni, Andreas Macrander, Hjólafærni, Sesselja Traustadóttir, Hjólafærni og Ingi Gunnar Jóhannsson, Hugarflug ehf. - Ágrip |
14:15-14:30 |
Áreiðanleiki hviðuspáa í Harmonie-Arome líkaninu, fylgni spáa, viðvarana og mælinga, Elín Björk Jónasdóttir og Ingibjörg Jóhannesdóttir, Veðurstofan - Ágrip |
14:30-14:45 |
Umræður og fyrirspurnir |
14:45-15:15 |
Kaffi |
15:15-15:30 |
Greining á kerfum og vinnuumhverfi í vaktstöð Vegagerðarinnar, Halla Katrín Svölu- og Arnardóttir, EFLA - Ágrip |
15:30-15:45 |
Rafbílar - áhrif á hljóðstig og tíðniróf, Ólafur Daníelsson, EFLA - Ágrip |
15:45-16:00 |
Losun svifryks frá gatnakerfinu á höfuðborgarsvæðinu - ferlar og líkan [erindi flutt á ensku], Brian Barr, Háskóla Íslands - Ágrip |
16:00-16:15 |
Samsetning og uppruni svifryks í Hvalfjarðargöngunum, Gísli Guðmundsson, Rb við Nýsköpunarmiðstöð Íslands - Ágrip |
16:15-16:30 | Greining á samfélagslegum og hagrænum ávinningi bættra samgangna - rýni á rannsóknaraðferðum, Eva Dís Þórðardóttir, EFLA - Ágrip |
16:30-16:45 |
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og Vegagerðin, Bryndís Skúladóttir, VSÓ - Ágrip |
16:45-17:00 |
Umræður og fyrirspurnir |
17:00 |
Ráðstefnuslit, léttar veitingar í boði Vegagerðarinnar |
Hvað mun okkur finnast?
Bergur Ebbi, rithöfundur, ljóðskáld og ritgerðasmiður, heldur upphafserindi ráðstefnunnar. Erindið ber heitið; Hvað mun okkur finnast? Um gildismat framtíðarinnar. Bergur er með fjölþættan bakgrunn úr heimi lista, viðskipta og blaðamennsku. Meðal umfjöllunarefna í verkum Bergs Ebba er tæknisaga og áhrif hennar á sjálfsmynd fólks, stjórnmál, valdajafnvægi, breytt heimsmynd, tíska og tíðarandi. Bergur Ebbi er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og með MDes gráðu í Strategic Foresight and Innovation frá OCAD Háskólanum í Toronto í Kanada auk þess að leggja stund á lögfræði og listasögu við Université deCergy Pontoise í París.