Rafskútur og umferðaröryggi
Ný rannsókn styrkt af Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar
Skýrslan „Rafskútur og umferðaröryggi“ var gefin út á dögunum en um er
að ræða afrakstur rannsóknar VSÓ Ráðgjafar sem var styrkt af
Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar og Reykjavíkurborg. Tilgangur
rannsóknarinnar var að athuga hvaða áhrif rafskútur hafi á
umferðaröryggi og hvaða þættir það eru sem helst ógna öryggi
rafskútunotenda sem og annara vegfarenda í umferðinni.
Rafskútur (e. e-scooter) eru rafknúin hlaupahjól, oft einnig kölluð rafhlaupahjól eða rafskottur. Rafskútur hafa notið aukinna vinsælda undanfarin ár, hér á landi sem og í heiminum öllum, og hafa þær orðið sífellt meira áberandi í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu. Þessi ferðamáti er kominn til að vera og er ný viðbót í hóp virkra ferðamáta sem stuðla að breyttum ferðavenjum. Vinsældir rafskúta benda til þess að íbúar höfuðborgarsvæðisins séu opnir fyrir nýjungum í samgöngum.
Nýjum ferðamátum fylgja líka spurningar um umferðaröryggi og undanfarið hefur skapast umræða um mögulega aukna slysahættu vegna rafskúta. Í verkefninu verður litið til erlendra rannsókna á slysum tengdum rafskútum og einnig verður skoðað hvaða reglur gilda um rafskútur í öðrum löndum. Þá verður skoðað til hvaða aðgerða sé hægt að grípa til að auka umferðaröryggi rafskúta. Helsti ávinningur verkefnisins er sá að umræða tengd umferðaröryggi rafskúta verður upplýstari og markvissari. Verkefnið mun vekja athygli á því hversu mikilvægt er að huga að umferðaröryggismálum þegar nýir ferðamátar verða til og ferðavenjur íbúa á höfuðborgarsvæðinu og landinu öllu breytast.
Skýrsluna má nálgast hér.