Fréttir
  • Búast má við mikilli umferð um Hvalfjarðargöng um helgina.
  • Vaktstöð Vegagerðarinnar fylgist vel með umferðinni um Hvalfjarðargöng og lokar þeim ef óhapp verður í göngunum.
  • Vaktstöð Vegagerðarinnar fylgist vel með umferðinni um Hvalfjarðargöng og lokar þeim ef óhapp verður í göngunum.

Pössum bilið í Hvalfjarðargöngum

Minnst 50 metrar skulu vera milli bíla til að minnka líkur á óhöppum

16.6.2023

Nú stendur fyrir dyrum mikil ferðahelgi, enda veðrið gott víða um land. Búast má við talsverðri umferð á Hringvegi (1) alla helgina, ekki síst í Hvalfjarðargöngum, og eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát þegar ekið er um göngin þegar umferð er mikil.

Mikil umferð var um Hvalfjarðargöng þessa sömu helgi í fyrra. Þá urðu mörg óhöpp í göngunum og fjöldi ökutækja varð fyrir tjóni. Þetta olli tilheyrandi umferðartöfum enda nauðsynlegt að loka göngunum þegar óhöpp verða til að tryggja öryggi á meðan leyst er úr aðstæðum.

Vegfarendur eru því hvattir sérstaklega til að passa upp á bil milli ökutækja í Hvalfjarðargöngum, og raunar í öllum jarðgöngum. Skilti við göngin segir til um að minnst 50 metrar skuli vera á milli allra bíla.

Nokkur viðbrigði geta verið að aka inn og út úr jarðgöngum þegar bjart er úti, og því um að gera að vera viðbúin öllu og passa bilið.