Fréttir
  • Gerð var úttekt á brúm á umferðarþyngstu vegum landsins. Sett var nýtt vegrið við Hamraborg.
  • Í átakinu felst að fjarlægja eldri vegrið, farga þeim og setja upp vegrið sem eru hærri og sterkbyggðari.
  • Í fyrrasumar var sett nýtt vegrið á brýr yfir Elliðadalinn.
  • Sett voru ný vegrið á brú á Vífilsstaðavegi og Kauptúni yfir Reykjanesbraut fyrr á árinu, til að skilja að akandi og gangandi vegfarendur.

Ný vegrið komin á 12 brýr af 20 í vegriðsátaki Vegagerðarinnar

Áformað að skipta um kílómetra af vegriði árlega

4.1.2024

Tæplega tólf hundruð brýr á Íslandi heyra undir Vegagerðina. Þar af eru 654 einbreiðar brýr og 532 tvíbreiðar brýr, eða samtals um 31 kílómetri af brúm. Meðalaldur brúa er 45 ár en þriðjungur þeirra er orðinn meira en 60 ára gamall. Árið 2019 setti Vegagerðin af stað átak í vegriðsmálum þar sem gerð var öryggisúttekt á 900 brúm. Helstu áhættuþættir voru metnir en sérstök áhersla var lögð á að taka út ástand og öryggi vegriða til að meta hvar brýnast væri að skipta út eldri vegriðum fyrir ný og sterkbyggðari vegrið sem uppfylla gildandi öryggisstaðla.

Úttektin var gerð á brúm sem eru staðsettar á stofn- og tengivegum um land allt, þar með taldar eru  allar brýr á Hringveginum og brýr á umferðarþyngstu vegum landsins, en margar þeirra eru á höfuðborgarsvæðinu. Auk þess var gerð úttekt á brúm þar sem afleiðingar af slysum geta verið mjög alvarlegar. Þar er um að ræða brýr sem eru yfir umferðarþungum götum, brýr sem um gildir að fall af þeim er hátt og einnig þar sem farið er yfir sjó. Umferðaröryggi vegfarenda er haft að leiðarljósi í þessu átaki.

Samhliða úttektinni var verkefnum forgangsraðað og gerð aðgerðaráætlun um að skipta út vegriðum á tuttugu brúm fyrir árslok 2025. Verkefnið snýst í grunninn um að fjarlægja eldri vegrið sem ekki standast nútíma öryggiskröfur, farga þeim og setja upp ný vegrið, sem eru hærri og sterkbyggðari og uppfylla gildandi öryggisstaðla.

Jafnframt er nú unnið að fimm ára áætlun um útskipti á vegriðum á fleiri brúm og vonast er til að Vegagerðin fái fjármagn til að það verkefni verði að veruleika. Stefnt er að því að skipta um vegrið á brúm sem samsvara um heilum kílómetra á ári.

Ný vegrið á tólf brýr

Frá því að vegriðsátakið hófst hefur verið skipt um vegrið á tólf brúm af þeim tuttugu sem settar voru í forgang. Þær brýr sem eru komnar með ný vegrið eru:

  • Borgarfjarðarbrú, en í sumar lauk vinnu við að skipta um vegrið á þeirri fjölförnu brú
  • Brú yfir Hafnarfjarðarveg við Hamraborg
  • Brú yfir Kársnesbraut
  • Brú yfir Nýbýlaveg
  • Brú á mislægum vegamótum við Digranesveg
  • Tvær brýr yfir Reykjanesbraut yfir Fífuhvammsveg
  • Tvær brýr yfir Elliðaárnar
  • Brú yfir Markarfljót
  • Brú yfir Köldukvísl
  • Brú yfir Leirvogsá

Einnig hefur verið skipt um vegrið á brúm sem ekki voru á aðgerðarlistanum en brýnt þótti að uppfæra, svo sem á brú yfir Bústaðaveg. Á þessu ári voru sett ný vegrið á brú á Vífilsstaðavegi og Kauptúni yfir Reykjanesbraut til að skilja að akandi og gangandi vegfarendur. Í farvatninu fyrir 2024 er að uppfæra fleiri vegrið á umferðarþungum brúm, meðal annars á brúm yfir Þjórsá, Reykjanesbraut yfir Fífuhvammsveg, Bjarnardalsá og Ölfusárós.

Allar brýr í eigu Vegagerðarinnar eru skoðaðar vandlega á fjögurra ára fresti en sumar þarf að skoða oftar, eða annað hvort ár. Brýr eru aðeins teknar úr umferð ef þær standast ekki kröfur um burð og öryggi vegfarenda en með natni og nútímaaðferðum er hægt að lengja líftíma þeirra og uppfæra svo þær standist nútíma öryggiskröfur. Með þyngri bílum og meiri umferð á vegum um landið og sérstaklega í þéttbýli verður sífellt mikilvægara  að umferðamannvirki séu uppfærð samkvæmt nútíma stöðlum og er vegriðsátak Vegagerðarinnar liður í því risastóra verkefni.

Þessi grein birtist fyrst í   Framkvæmdafréttum 6. tbl. 2023, nr. 728. Áskrift að Framkvæmdafréttum er frí og hægt að gerast áskrifandi með því að senda póst á askrift@vegagerdin.is