Fréttir
  • Brú við Kauptún eins og hún mun líta út eftir uppsetningu nýju vegriðanna.
  • Brú við Kauptún eins og hún lítur út í dag.
  • Kort af brúnni við Kauptún. Ný vegrið eru merkt með grænum lit.
  • Mynd af brúnni við Vífilsstaði. Ný vegrið eru merkt með grænum lit.
  • Brú við Vífilsstaði fyrir uppsetningu nýju vegriðanna.
  • Brú við Vífilsstaðaveg. Svona verður brúin þegar búið verður að setja upp ný vegrið.

Ný vegrið á brýr yfir Reykjanesbraut

Settar upp til að auka öryggi gangandi vegfarenda

12.9.2023

Ný vegrið verða sett upp á tveimur brúm á Reykjanesbraut, annars vegar á brú við Kauptún og hins vegar á brú við Vífilsstaðaveg. Tilgangurinn með þessum framkvæmdum er að auka öryggi gangandi vegfarenda, en sífellt fleiri nýta sér þessar býr til að komast leiðar sinnar.

Um er að ræða uppsetningu á nýjum brúarvegriðum og tengivegriðum í öðrum kanti brúa við gönguleiðir, ásamt endafrágangi. Heildarlengd nýrra brúarvegriða er um 270 m og heildarlengd nýs bitavegriðs utan við brú við Kauptún er um 18 m. 

Framkvæmdir hefjast á næstu dögum og áætluð verklok eru í janúar 2024.