Næg verkefni í snjómokstri
víða unnið að því að moka snjó
Nóg hefur verið að gera hjá Vegagerðinni að undanförnu við að halda vegakerfinu opnu. Þegar þetta er ritað fyrir hádegi á fimmtudegi (7. mars) er víða skafrenningur eða þæfingsfærð á norðanverðu landinu en vegir að mestu opnir, þæfingsfærð er á Fjarðarheiði fyrir austan, flughált og hvasst á Reynisfjalli en verst er færðin á Vestfjörðum.
Þar er nú víða unnið að snjómokstri, hvort heldur er á sunnanverðum fjörðunum eða í Djúpinu og einnig á Þröskuldum og í nágrenni Hólmavíkur. Meðfylgjandi myndir voru teknar í Djúpafirði, á Svínadal og í Reykhólasveit í morgun og sýna að þó nokkur snjór er á svæðinu sem víða hefur dregið í myndarlega skafla. Ruðningstækin vinna svo á sköflunum með seiglunni.
Nýjustu stöðuna má svo sjá á færðarkortinu sem er að finna hér á vefnum, í hægra horninu efst, minna má lika á vefmyndavélarnar og vegasjána sem nálgast má af forsíðu vefsins.
Mokstur á Svínadal í morgun: