Fréttir
  • Tjöruslettur á flutningabíl
  • Tjöruslettur á flutningabíl
  • Tjöruslettur á flutningabíl
  • Tjöruslettur á flutningabíl
  • Tjöruslettur á flutningabíl

Unnið að hreinsun - vegfarendur hvattir til varúðar

skilti verða sett upp og gerð tilraun til að stemma stigu við blæðingunum

22.1.2013

Vetrarblæðingar hafa verið óvenju miklar að undanförnu.  Ekki er nákvæmlega vitað afhverju þær verða en líklega er um að ræða samspil tíðarfarsins, þess að það skiptist á þíða og frost, og þess að hálkuvarnir, sand- og saltnotkun hefur verið mikil síðustu vikur. Vatn kemst niður í klæðinguna en ekki lengra þar sem frost er undir, þá geta nagladekk og íblöndunarefni í klæðingunni spilað inn í þetta ferli. Lífolía var notuð á þeim köflum þar sem mestu blæðingarnar eru. Vetrarblæðingar, í mun minna mæli, hafa þekkst síðan 1995, þegar notuð voru önnur íblöndunarefni.

Mest hefur verið um blæðingar í Húnavatnssýslum vestan við Blönduós en tjörukögglar hafa dreifst víða um vegakerfið á Vestur- og Norðurlandi.

Vegagerðin biður vegfarendur velvirðingar á þessu ástandi og hvetur ökumenn til þess að gæta varúðar, sérstaklega þegar bílar mætast á þessum svæðum. Mikilvægt að draga úr hraða þegar bílar mætast.

Vegagerðin hefur í dag unnið að hreinsun á vegunum þar sem tjörukögglar hafa dreifst og mun halda því áfram í dag og næstu daga haldi þetta ástand áfram. Erfiðara er við að eiga þá kafla þar sem blæðingarnar eru upprunnar. Í næstu þíðu verður gerð tilraun með að dreifa steinefni í valda kafla til að stemma stigu við frekari blæðingum.

Þá verða sett upp sérstök varúðarskilti vegna tjörublæðinganna og einnig skilti þar sem varað er við steinkasti (tjörukögglum).

Sé um tjón að ræða þarf að fylla út tjónsskýrslu hjá Sjóvá og síðan verður tekin afstaða til bótaskyldu. Ef um verulega óhreina bíla er að ræða má koma með þá á þjónustustöðvar Vegagerðarinnar á Akureyri, Borgarnesi, Hvammstanga, Sauðárkróki, Búðardal, Ólafsvík eða í Reykjavík, láta skoða bílinn og fá beiðni fyrir þrifum. 

 

Skiltin sem verða sett upp

 

Tjörublæðingar

 

Tjörublæðingar