Efnistaka vegna endurbyggingar Múlakvíslar - Tillaga að matsáætlun
Vegagerðin auglýsir hér með tillögu að matsáætlun vegna fyrirhugaðra efnistöku í farvegi Múlakvíslar á Mýrdalssandi.
Efnistaka úr farveginum er ætluð til byggingar varnargarða og vegar vegna endurbyggingar mannvirkja við Múlakvísl sem eyðlögðust eða skemmdust í jökulhlaupi 9. júlí 2011.
Tillaga að matsáætlun er kynnt hér, samkvæmt reglugerð 1123/2005 um mat á umhverfisáhrifum.
Almenningur getur gert athugasemdir við áætlunina og er athugasemdafrestur til 14. desember 2012. Athugasemdir skal senda með tölvupósti til rögnvaldur.gunnarsson@vegagerdin.is, eða skriflega til Vegagerðarinnar, Borgartúni 7, 105 Reykjavík.
Tillaga að matsáætlun (pdf 4,2 MB)