Fréttir
  • Rannsóknastyrkir

Umsóknarfrestur runninn út

3.2.2009

Frestur til að sækja um fjárveitingu úr rannsóknasjóði Vegagerðarinnar fyrir árið 2009, rann út að kvöldi 2. febrúar 2009. Umsækjendur eiga að hafa fengið sendan tölvupóst til staðfestingar á móttöku umsókna og að hún verði tekin til athugunar og svör berist í tölvupósti þegar ákvörðun liggur fyrir.

[Ath. Telji einhver sig hafa sent inn umsókn, án þess að hafa fengið slíkt svar er viðkomandi beðinn um að hafa samband við Þóri Ingason (thorir.ingason@vegagerdin.is)]

Í þetta sinn voru slegin öll met í upphæð umsókna og er heildarupphæð um þrefalt hærri en sú upphæð sem til ráðstöfunar er úr sjóðnum. Rannsóknaráð Vegagerðarinnar mun nú fara yfir umsóknirnar og stefnt er að því að niðurstöður liggi fyrir um mánaðarmótin febrúar/mars næstkomandi.