Fréttir
  • Tenging Vopnafjarðar við Hringveg

Norðausturvegur til Vopnafjarðar. Brunahvammsháls - Vopnafjörður

Mat á umhverfisáhrifum - Athugun Skipulagsstofnunar

8.2.2007

Vegagerðin hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar, frummatsskýrslu um Norðausturveg til Vopnafjarðar, Brunahvammsháls - Vopnafjörður.

Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 8. febrúar til 23. mars 2007, sjá Frummatsskýrslu og fylgiskjöl hér.

Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 23. mars 2007 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.

Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000 m.s.b.