Samtök opinberra verkkaupa (SOV) stofnuð
Þann 1. desember 2006 var haldinn stofnfundur SOV – Samtaka opinberra verkkaupa. SOV er samstarfsvettvangur opinberra aðila á Íslandi, sem stunda kaup á verkum og þjónustu þeim tengdum. Aðild að samtökunum geta átt ríkisstofnanir og sveitarfélög.
Stofnaðilar SOV eru Framkvæmdasýslan, Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar, Siglingastofnun og Vegagerðin.
Tilgangur SOV er:
- Að vera samtök opinberra aðila á Íslandi, sem stunda kaup á verkum og þjónustu þeim tengdum.
- Að beita sér fyrir aukinni gæðavitund við mannvirkjagerð á Íslandi og innleiðingu gæðastjórnunar við verklegar framkvæmdir.
- Að leggja áherslu á öryggis- heilbrigðis- og umhverfismál sem tengjast verklegum framkvæmdum.
- Að vera leiðandi í samræmingu og þróun aðferða og gagna sem tengjast útboðum á verklegum framkvæmdum og þjónustu þeim tengdum.
- Að taka þátt í innlendu og alþjóðlegu samstarfi er snýr að stöðlun, hagræðingu og þróun í mannvirkjagerð.
- Að stuðla að ráðstefnum á sviði mannvirkjagerðar sem taka á gæðavitund, öryggi, heilbrigði, umhverfi og samræmingu útboðsgagna í verklegum framkvæmdum
Fyrstu stjórn samtakanna skipa:
Óskar Valdimarsson, Framkvæmdasýslunni
Guðmundur Pálmi Kristinsson, Reykjavíkurborg
Rögnvaldur Gunnarsson, Vegagerðinni
Frá stofnfundi SOV - Samtaka opinberra verkkaupa, frá vinstri Gísli Viggósson Siglingastofnun,
Rögnvaldur Gunnarsson Vegagerðinni, Óskar Valdimarsson Framkvæmdasýslu ríkisins og
Guðmundur Pálmi Kristinsson Framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar.