Fréttir
Spennandi rannsóknaráðstefna á föstudag
skráningu lýkur í dag miðvikudag
Mörg áhugaverð erindi verða flutt á rannsóknaráðstefnu Vegagerðarinnar sem verður haldin í Norðurljósasal Hörpu föstudaginn 30. október. Enn er hægt að skrá sig en það er gert rafrænt og er mögulegt í allan dag, miðvikudaginn 28. október. Erindin eru af ýmsum toga enda rannsóknarstarf sem Vegagerðin styrkir margþætt og áhugasviðin mörg.
Kynningarnar á rannsóknaverkefnum snerta flest svið mannlífsins og samgagna svo sem sjá má dæmi um hér fyrir neðan, en alla dagskrána má sjá hér og einnig ágrip af flestum fyrirlestrunum:
- Kortlagning þarfar á salernisaðstöðu meðfram þjóðvegum Íslands - Staða mála í nágrannalöndunum og á Íslandi
- Aðstæður fyrir sjálfakandi bíla á Íslandi
- Skaftárhlaup í beinni útsendingu
- Vegir og ferðaþjónusta
- Aðgengi fatlaðs fólks að samgöngumannvirkjum
- Líkan um endingu hálkusalts