Fréttir
  • Hálendiskort 26. júní 2015
  • Á leið í Landmannalaugar 9. júní 2015
  • Á leið í Landmannalaugar 16. júní 2015

Talsvert opnað af hálendisvegum í dag

nýtt hálendiskort í dag

26.6.2015

Búið er að opna leið inn í Landmannalaugar og Veiðivötn fyrir 4x4 bíla og einnig er búið að opna töluvert mikið á Norðausturlandi, inn í Kverkfjöll og Dreka, en þaðan má komast inn að Holuhrauni. Enn eru þó flestar leiðir á hálendinu lokaðar. Það styttist í að hægt verði að opna Kjalveg allan. Opið er í Hveravelli að norðan.


Sjá nýtt hálendiskort sem er gefið út í dag. Skyggðu svæðin sýna akstursbann.

Það er mikill snjór á hálendinu víða og sjá má á myndinni sem fylgir fréttinni að aðstæður eru erfiðar, myndin var tekin 9. júní sl. og hafa aðstæður breyst mjög til hins betra síðan þá. Neðri myndin er tekin 16. júní.