Fréttir
  • Brúin yfir Þjórsá sem hlaut norrænu brúarverðlaunin árið 2008. Mynd/Viktor Arnar Ingólfsson

Norrænu brúarverðlaunin 2024

Óskað eftir tilnefningum

11.12.2023

Norrænu brúarverðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi framlag á sviði brúarverkfræði með sérstaka áherslu á notagildi þess á Norðurlöndunum.

Verðlaunin eru veitt á fjögurra ára fresti og verða afhent fulltrúa eiganda þess mannvirkis sem verðlaunin hlýtur á ráðstefnunni Via Nordica 2024, sem haldin verður í Kaupmannahöfn 10.-12. júní 2024 ( www.vianordica2024.dk ).

Verðlaunin árið 2024 verða veitt fyrir nýja brú eða endurgerð brúar sem er staðsett á Norðurlöndunum og hefur verið lokið á árunum 2016 til júní 2024.

Verkefnið skal vera eftirtektarvert, frumlegt, skapandi eða á annan hátt fela í sér mikilvægt framlag, á sviði brúarverkfræði eða til þess svæðis sem verkefnið er staðsett á. Stærð brúarinnar skiptir ekki máli.

Hvert þátttökuland í brúarnefnd Norræna vegtæknisambandsins (NVF) má tilnefna tvær brýr eða verkefni til verðlaunanna. Dómnefnd skipuð tveim fulltrúum frá hverju þátttökulandi mun velja sigurvegara.

Senda skal tilnefningu um brúarverkefni á Íslandi til formanns norrænu brúarnefndarinnar, Guðmundar Vals Guðmundssonar (gvgu@vegagerdin.is), fyrir 31.desember 2023.

Tilnefningin skal innihalda

  • stutta lýsingu og ljósmynd af brúnni
  • lýsingu á verðleikum
  • nöfn á verkkaupa, verktaka, hönnuðum og öðrum sem komu að verkefninu