Minni umferð í janúar á höfuðborgarsvæðinu
Umferðin dróst saman um 6,4 prósent
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í janúar reyndist 6,4 prósentum minni en í sama mánuði fyrir ári síðan. Þetta er annað en á Hringveginum þar sem umferðin jókst lítillega í janúar ( sjá fyrri frétt ). Umferðin dróst líka saman í síðustu viku miðað við sömu viku fyrir ári þannig að reikna má með að enn séu reglur um sóttvarnir áhrifavaldur í umferðinni.
Milli ára
eftir mánuðum
Umferðin í
janúar á höfuðborgarsvæðinu, yfir þrjú lykilmælisnið Vegagerðarinnar, reyndist 6,4%
minni en í sama mánuði á síðasta ári. Umferð dróst saman í öllum
mælisniðum en mest í sniði á Hafnarfjarðarvegi (-11,9%) og minnst í sniði á
Vesturlandsvegi (-1,9%) ofan Ártúnsbrekku. Fyrir ári síðan dróst umferð
saman í janúar 2020 um 1,6% miðað við janúar 2019 svo þessi samdráttur nú kemur ofan á
þann samdrátt.
Vikuumferðin
(Covid-tengd)
Ef eingöngu
er horft til síðustu viku eða fimmtu viku, innan ársins, dróst umferðin saman
um 5,6% miðað við sömu viku árið 2020. Þetta er heldur meiri samdráttur en varð í viku
4, en alls ekki óeðlilegt að umferðin sveiflist talsvert meira á milli vikna en
mánaða, þar sem vikurnar eru ekki á sömu dagsetningum á milli ára og síðan, yfir
vetrartímann, hefur veðurfarið meira vægi þó minna innan höfuðborgarsvæðis en út á
Hringvegi. Það verður því áfram fróðlegt að fylgjast með þróuninni á næstu
vikum og mánuðum.
Umferð
innan mánaðar eftir vikudögum
Ef bara er
horft á virka daga, í nýliðnum mánuði, þá var mest ekið á þriðju- og
miðvikudögum en minnst á föstudögum sem verður að teljast óvanalegt enda kemur
í ljós að umferðin dróst hlutfallslega mest saman á þeim vikudegi eða um tæp 15%,
þegar miðað er við sama mánuð á síðasta ári. Umferðin jókst hins vegar á
miðvikudögum í janúar eða um 3,5%.