Minni umferð á höfuðborgarsvæðinu
umferðin hefur dregist saman um tæp níu prósent frá áramótum
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í júlí dróst saman um 3,4 prósent miðað við sama mánuð fyrir ári síðan, umferðin var einnig minni en hún var í júní. Þetta er svipuð þróun og í venjubundnu ári nema sveiflan er stærri. Hugsanlega hefur áhrif nú að höfuðborgarbúar sæki í auknum mæli í frí út á land en aukning varð á umferð á Hringveginum í júlí miðað við nýliðin júnímánuð. Frá áramótum hefur umferðin dregist saman um tæp níu prósent.
Milli
mánaða
Líkt og von
var á, var ekið minna á höfuðborgarsvæðinu í nýliðnum júlí miðað við júní á þessu ári, þannig að einkenni umferðarinnar á höfuðborgarsvæðinu hafa haldið sér þrátt fyrir skrítið
ástand. Sé hins vegar umferðin í nýliðnum júlí borin saman við sama mánuð
á síðasta ári, dróst hún saman um sama hlutfall og á Hringvegi, eða um 3,4%.
Mest dróst umferð saman um mælisnið á Hafnarfjarðarvegi eða um 8,9%, sem er
gríðarmikill samdráttur, en minnst um mælisnið á Reykjanesbraut eða um 0,7%, sem
er að festa sig í sessi sem umferðamesta mælisniðið af þessum þremur.
Frá
áramótum
Nú hefur
umferð dregist saman um 8,9%, frá áramótum miðað við sama tímabil á síðasta
ári. Þetta er gríðarmikill samdráttur, sem orðinn er á höfuðborgarsvæðinu líkt og
á Hringvegi. Þótt hann sé minni í prósentum talið þá er hann tæplega 3 sinnum meiri en
áður hafði mest mælst á höfuðborgarsvæðinu. Þessi samdráttarsveifla innan höfuðborgarsvæðisins
er því hlutfallslega miklu stærri en á Hringvegi, miðað við árstíma, sem verður að
teljast óvanalegt því umferðin á höfuðborgarsvæðinu er mun stöðugri en út á
Hringvegi. Vegagerðin hefur ekki rannsakað ástæður þessa en einn
mögulegur hluti ástæðunnar gæti verið sá að ef höfuðborgarbúar hafa farið í meira mæli
út á Hringveg en í ,,venjulegu” ári þá gæti það hafa leitt til meiri niðursveiflu
í umferð innan höfuðborgarsvæðis og þá um leið valdið meiri umferð út á Hringvegi.
Þetta gæti valdið því að sveiflur séu meiri innan höfuðborgarsvæðis en utan þess. En
þetta er bara tilgáta eins og er.
Umferð
eftir vikudögum
Umferðin
dróst saman í öllum vikudögum en mest á föstudögum en minnst á mánudögum.
Mest var ekið á fimmtudögum og eins og áður minnst á sunnudögum.
Horfur út
árið
Nú þegar um
60% er liðið af árinu 2020 lítur út fyrir að umferðin geti dregist saman um 8%
á höfuðborgarsvæðinu. Ekki er búist við að umferð aukist í neinum mánuði, sem
eftir er ársins. Það verður hins vegar mjög fróðlegt að sjá hvernig
umferðin verður í haust en september hefur gjarnan verið umferðarmestur á
höfuðborgarsvæðinu.