Fréttir
  • Umferðin samanlögð
  • Umferðin hlutfallsleg aukning
  • Umferðin eftir mánuðum
  • Umferðin með spá út árið
  • Umferðin eftir vikudögum

Líka met í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu

stefnir í að umferðin í ár verði 4,5 prósentum meiri en í fyrra

6.12.2023

Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í nóvember reyndist 3,5 prósentum meiri en í sama mánuði í fyrra. Þetta er heldur minni aukning en á Hringvegi en töluvert mikil aukning. Nú stefnir í að umferðin á svæðinu í ár slái öll met og verði 4,5 prósentum meiri á höfuðborgarsvæðinu en í fyrra.

Milli mánaða 2022 og 2023
Umferðin í nýliðnum nóvember reyndist 3,5% meiri en í sama mánuði á síðasta ári, fyrir þrjú lykil mælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu. Líkt og á Hringvegi reyndist heildarumferðin í mánuðinum vera nýtt met.

Hlutfallslega jókst umferðin mest yfir mælisnið á Vesturlandsvegi ofan Ártúnsbrekku (4,0%) en minnst jókst umferð í mælisniði á Hafnarfjarðarvegi við Kópavogslæk (2,4%).

Frá áramótum
Nú hefur umferðin aukist um 4,4% í umræddum mælisniðum á tímabilinu frá áramótum til nóvember loka borið saman við sama tímabil á síðasta ári. Leita þarf aftur til ársins 2017 til að finna meiri aukningu miðað við árstíma, ef frá er talið árið 2021 vegna aukningar eftir Covid-faraldurinn.

Umferð eftir vikudögum.
Hlutfallslega jókst umferð mest á sunnudögum (5,3%) en minnst á þriðjudögum (1,7%).  Mest var ekið á föstudögum en minnst á sunnudögum, í nýliðnum mánuði.

Horfur út árið 2023
Nú þegar einn mánuður er eftir af árinu eru yfirgnæfandi líkur á því að nýtt umferðarmet verði sett,  yfir mælisniðin þrjú, því umferðin í desember þarf einungis að vera rétt rúmlega helmingurinn af því sem hún er í venjulegu árferði til að setja nýtt met. 

En núna er líklegast að umferðin í ár verði um 4,5% meiri en hún var á síðasta ári.