Grindavíkurvegur opinn
vegfarendur fari sérstaklega varlega á þeim hluta sem fer yfir nýtt hraun
Búið er að opna leið um Grindavíkurveg frá Reykjanesbraut að nýrri vegtengingu að Bláa lóninu sunnan varnargarðs. Nýr hluti Bláalónsvegar er allur innan varnargarðsins. Þessi leið er öllum opin en lokað er til Grindavíkur nema þeim sem um mega fara.Leyfilegur hámarkshraði á Grindavíkurvegi er 90 km/klst. frá
Reykjanesbraut að nýja hrauninu (norðan Sýlingafells) sem rann yfir
Grindavíkurveginn. Þaðan og að Bláa lóninu er leyfilegur hámarkshraði 50
km/klst. Beygjur á nýju tengingunni að Bláalónsvegi eru margar krappar og þarf
að aka með gát þar. Sérstaklega þarf að gæta að sér á veginum þar sem hann
liggur yfir nýja hraunið og þar er stranglega bannað að stöðva ökutæki enda er
enn mikill hiti í vegi og á svæðinu í kring.
Vegurinn yfir hraunið á Grindavíkurvegi og ný vegtenging frá Grindavíkurvegi að Bláalónsvegi er með malarslitlagi og því líka nauðsynlegt að fara gætilega þess vegna.
Bannað er að leggja ökutækjum í vegkanti á allri þessari leið.
Grindavíkurvegur er lokaður almennri umferð sunnan við nýja vegtengingu að Bláalónsvegi sem sjá má á kortinu.