Gríðarlegur samdráttur umferðar á Hringvegi
fjórum sinnum meiri samdráttur en áður hefur mælst
Umferðin í ágústmánuði á Hringveginum dróst saman um 12 prósent miðað við umferð í sama mánuði í fyrra. Ekki hefur áður mælst viðlíka samdráttur í umferðinni í ágúst en þetta er ríflega fjórum sinnum meiri samdráttur en áður hefur mælst mestur. Útlit er fyrir að umferðin dragist saman um 12 prósent í ár sem er gríðarlega mikill samdráttur á milli ára.
Milli
mánaða 2019 og 2020
Umferðin
yfir 16 lykilteljara á Hringvegi dróst saman um tæp 12% í nýliðnum ágúst borið
saman við sama mánuð á síðasta ári. Þetta er langmesti samdráttur sem
mælst hefur á milli ágústmánaða, eða um fjórum sinnum meiri munur en áður hefur mælst.
Umferð dróst saman í öllum landssvæðum og mest yfir mælisnið á Austurlandi eða um rúmlega 27% en minnst yfir mælisnið á og í grennd við höfuðborgarsvæðið eða um tæp 6%.
Öll mælisnið sýndu samdrátt og það varð rúmlega 46% samdráttur um mælisnið á Mýrdalssandi en minnst dróst umferð saman yfir mælisnið við Úlfarsfell eða um tæp 4%.
Frá
áramótum
Nú hefur umferðin dregist saman um 12% frá áramótum miðað við sama tímabil á síðasta ári. Þetta er ríflega tvisvar sinnum meiri samdráttur en áður hefur mælst á þessum árstíma.
Umferð hefur dregist mikið saman á öllum landssvæðum en mestur hefur samdrátturinn orðið á Austurlandi eða rúmlega 26% samdráttur en minnstur á og í grennd við höfuðborgarsvæðið eða tæp 6%.
Umferð
eftir vikudögum
Líkt og
búast mætti við hefur umferðin dregist saman í öllum vikudögum, þegar horft er
á tímabilið frá áramótum og það borið saman við sama tímabil á síðasta
ári. Hlutfallslega hefur mælst mestur samdráttur á sunnudögum en minnstur
á þriðjudögum.
Frá áramótum hefur mest verið ekið á föstudögum og minnst á laugardögum.
Horfur út
árið 2020
Núna þegar
þrír umferðarmestu mánuðir ársins eru liðnir hefur óvissan um
framhaldið á Hringvegi lítið minnkað vegna kórónuveirunnar. Horfur út árið benda til ekki minni samdráttar en verið hefur síðan júlítölur voru birtar og nú stefnir í um 12% samdrátt, haldi einkenni
umferðar sér líkt og í meðalári.